Gamli góði refaturninn - Steinar Skarphéðinsson skrifar

Rúmum 70 árum eftir glæpinn stóra vitjar Steinar vettvanginn við refaturninn á Nöfum. Myndir: PF.
Rúmum 70 árum eftir glæpinn stóra vitjar Steinar vettvanginn við refaturninn á Nöfum. Myndir: PF.

Það hefur trúlega verið um árið 1953 sem þessir atburðir áttu sér stað og það fyrir þann tíma sem sjónvarp, app og alls konar afþreyingartæki, voru höfð til þess að hafa ofan af fyrir börnum og unglingum. Börn og unglingar þurftu einfaldlega að hafa ofan af fyrir sér sjálf með alls konar leikjum og að sjálfsögðu fylgdu því allskonar uppátæki.

Á þessum tíma hafa unglingar trúlega verið mun þroskaðri en í dag enda komnir í tölu fullorðinna sextán ára, og farnir að vinna samkvæmt því, eftir Dagsbrúnartaxta fullorðinna. Á þessum tíma var meðferð skotvopna nokkuð frjálsleg hérna í þorpinu og þótti ekki tiltökumál þótt menn hefðu ekki til þess tiltekin leyfi og jafnvel ekki aldur til þess að bera skotvopn enda verkfæri til þess að færa björg í bú. Á þessum tíma bjó Egill Jónsson, vegaverkstjóri, í elsta húsi bæjarins við Lindargötu hér í bæ. Syni átti Egill og var þeirra næst yngstur Björn, sem  stundum var kallaður Gói, en ekki lengur heldur Björn Egilsson, eins og vera ber, þar sem hann er mektarmaður austur á Reyðarfirði, fyrrverandi rekstrarstjóri bílaverkstæðis og slökkviliðsstjóri.

Á heimili Björns var til byssa sem hafði einhvern tímann verið riffill en var í eigu Gunna, eldri bróðir Góa, og búið var að breyta henni í hálfgerða kindabyssu, saga af hlaupinu og breyta skeftinu. Svo var það einn góðan dag að við vorum  saman félagarnir, ég tólf ára, Gói (Björn), Halli Frissa (Haraldur Friðriksson fyrrverandi kvikmyndagerðarmaður hjá sjónvarpinu) en þeir voru árinu eldri, þrettán ára, og vorum við að pæla hvað við ættum að gera og kom þá upp sú hugmynd að gaman væri að fara á skytterí. Var því byssan góða sótt og ákveðið að fara upp á nafir. Þegar þangað var komið vorum við staddir skammt frá þar sem refaturninn stendur en hann er einn eftir af því sem áður var refabú sem Briem átti.

Enn er öflugur hengilás á hurð refaturnsins en í þetta sinn var ekkert skotvopn meðferðis.Enn er öflugur hengilás á hurð refaturnsins en í þetta sinn var ekkert skotvopn meðferðis.

Við dunduðum okkur við að skjóta í mark sem aðallega voru tómar dósir en þegar við fengum leið á því fórum við að rölta um og komum að refaturninum en hann var lokaður og fyrir dyrunum var stór hengilás. Þá rifjaðist upp fyrir okkur að við höfðun nýlega verið í bíó, séð kúrekamynd og þar þurfti aðalmaðurinn í myndinni að komast í vopnabúr sem var læst með svona álíka hengilás. Þetta leysti aðalmaðurinn með einu skoti (eins og Finni frá Steini hefði gert) Þetta ætluðum við að leika eftir en ekki gekk sem skildi bæði hittum við illa og skotfærin léleg (22 shotr) svo við hættum því fljótlega enda skotfærin á þrotum.

Því næst snérum við heim. Halli og Gói fóru niður Kristjánsklauf en ég hélt áfram suður nafirnar og kom niður hjá Árbæ, þar sem ég átti heima í Bláfelli. Eitthvert veður hafði Briem, sem átti refaturninn og rak verslun við aðalgötuna, haft af þessari ferð okkar á Nafirnar og kannaði verksummerki á turninum en eitthvað sá á hurðinni og við eftirgrennslan hafði sést til Góa og Halla koma niður Kristjánsklaufina.

Þegar svo var komið þótti Briem ástæða til þess að gera eitthvað í málinu og kærði þá Góa og Halla til sýslumanns, en ég slapp þar sem ég fór lengra suður Nafirnar og þar niður. Þeir félagar mínir voru kallaðir fyrir rétt hjá Sigurði sýslumanni til yfirheyrslu. Þar voru þeir yfirheyrðir ýtarlega og játuðu þeir á sig allar sakir og að því loknu voru þeir spurðir að því hvar þeir hefðu fengið skotin. „Við keyptum skotin hjá Briem!“ svöruðu félagarnir. Málið dautt.

                                                              Sauðárkróki 11. mars 2020 Steinar Skarphéðinsson.

Áður birst í 13. tbl. Feykis 2020

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir