Kennsla í hestamennsku

Myndatexti: Anna Bretaprinsessa og Eyjólfur Ísólfsson, tamningameistari og yfirreiðkennari á Hólum, á reið í Hjaltadal í júlí 2002. Anna situr stóðhestinn Töfra frá Selfossi og Eyjólfur Þotu frá Hólum. Anna prinsessa er mikil hestakona og í forystu alþjóðasamtaka hestamennskunnar (FEI) og mætti á vegum samtakanna á 15. landsmót LH og BÍ sem haldið var á Vindheimamelum 2. til 7. júlí. Heimsókn Önnu prinsessu var mikill heiður fyrir hestamennskuna á Íslandi og íslenska hestinn, því ekki aðeins er Anna tignasti gestur sem til landsmóts hefur komið heldur felst mikil viðurkenning í að fulltrúi FEI komi á landsmót. Ljósmynd úr bókinni Íslenski hesturinn sem út kom 2004 á vegum MM og SÍH, ljm.: Anna Fjóla Gísladóttir.
Myndatexti: Anna Bretaprinsessa og Eyjólfur Ísólfsson, tamningameistari og yfirreiðkennari á Hólum, á reið í Hjaltadal í júlí 2002. Anna situr stóðhestinn Töfra frá Selfossi og Eyjólfur Þotu frá Hólum. Anna prinsessa er mikil hestakona og í forystu alþjóðasamtaka hestamennskunnar (FEI) og mætti á vegum samtakanna á 15. landsmót LH og BÍ sem haldið var á Vindheimamelum 2. til 7. júlí. Heimsókn Önnu prinsessu var mikill heiður fyrir hestamennskuna á Íslandi og íslenska hestinn, því ekki aðeins er Anna tignasti gestur sem til landsmóts hefur komið heldur felst mikil viðurkenning í að fulltrúi FEI komi á landsmót. Ljósmynd úr bókinni Íslenski hesturinn sem út kom 2004 á vegum MM og SÍH, ljm.: Anna Fjóla Gísladóttir.

Í þessari grein verður fjallað um kennslu í hestamennsku en breytingin sem orðið hefur frá því sem áður var hvað varðar skilning á að hestamennsku megi læra er nánast alger. Þó mest hafi gerst hvað þetta varðar á seinni áratugum er viðleitni í þessa átt þó mun eldri.

Þannig birtust tvær fræðslugreinar í 8. árg. Búnaðarritsins árið 1894: Um tamningu hesta, eftir Gunnar Ólafsson, bónda í Lóni í Skagafirði, og Um járning á hestum eftir Sveinbjörn Ólafsson búfræðing. Árið 1925 kom út kverið Hestar eftir Daníel Daníelsson, ljósmyndara, hestamann og fyrsta formann Fáks, og Einar E. Sæmundsen, skógarvörð og hestamann, kostunarmaður útgáfunnar var Steindór Gunnarsson prentari og athafnamaður, hestelskur vel. Hann stofnaði Steindórsprent 1934 og það fyrirtæki gaf út árið 1937 endurminningar Daníels, sem hann ritaði sjálfur; Í áföngum og er hið merkasta rit. Hestamennska og margt annað kemur þar fyrir. Árið 1957 kom út eftir Einar E. Sæmundsen skáldsagan Sleipnir með undirtitilinn: Saga um hest hjá bókaútgáfunni Norðra. Ákaflega hjartnæm og læsileg bók sem hefur að inntaki viðleitni til að bæta og fegra hestamennskuna.

Það var svo árið 1951 að fyrsti vísir að reiðskóla var settur upp við Bændaskólann á Hvanneyri fyrir forgöngu Gunnars Bjarnasonar og tveimur árum síðar kom út hjá LH bókin Á fáki – kennslubók í hestamennsku eftir þá Boga Eggertsson og Gunnars Bjarnason. Morgunblaðsskeifan var fyrst veitt á Hvanneyri 1957 og fáeinum árum síðar líka á Hólum, sjá nánar í 14. tbl. þessa árs, þar er líka fjallað um það réttindakerfi sem varð til hvað reiðkennslu áhrærir inna vébanda FT, en alger þáttaskil urðu í reiðkennslumálum upp úr 1970. Enn þá var þó ekkert eiginlegt skólanám til staðar en ungmenni sem höfðu áhuga á hestamennsku og hugðust jafnvel leggja hana fyrir sig sóttu gjarnan í almennt búfræðinám og mikill vegsauki þótti af því að vinna Morgunblaðsskeifuna.

Hólaskóli; bændaskóli verður háskóli
Í áður tilvitnaðri grein í Feyki er getið um endurreisn Hólaskóla árið 1981. Lögð var þá áhersla á hestamennsku í búfræðináminu. Nýtt hesthús var tekið í notkun árið 1982, en það er nú orðið elsta hesthúsið sem enn er í notkun á Hólastað. Hestamennskunámið efldist jafnt og þétt á Hólum en hestamennska og hrossarækt áttu sér mun lengri sögu en þetta við bændaskólann. Umsvifamikil hrossarækt og tamningastafsemi fór þar fram en Hrossaræktarbú ríkisins var stofnsett á Hólum árið 1962 með það að stefnumiði að hreinrækta hin svokölluðu austanvatnahross (Svaðastaðastofn). Búinu var sett reglugerð árið 1971. Árið 1989 var þeirri reglugerð svo gerbreytt þegar ný var sett. Starfið á búinu skyldi verða í samræmi við nýjustu þekkingu í kynbótafræði og horfið var frá hreinræktun austanvatnahrossa. Ríkisbúið féll síðar inn í rekstur skólabúsins.

Árið 1989 reis reiðhöll á Hólum, áföst aðstöðuhúsi hesthússins frá 1982, var þetta fyrsta reiðhöllin á Norðurlandi en Reiðhöllin í Reykjavík, sú fyrsta á landinu, reis tveimur árum áður. Árið 1991 var sett upp hringgerði á Hólum, hið fyrsta á landinu. Þau eru nú orðin óteljandi mörg enda hið mesta þarfaþing við tamningu hrossa.

Samhliða uppbyggingu reiðkennslu á Hólum, og í raun líka vaxandi starfsemi á þessum vettvangi á Hvanneyri þó svo verkaskiptingu bændaskólanna skyldi svo háttað að áherslan á hestmennskuna yrði fyrst og fremst á Hólum, hélt réttindakerfi FT, sem áður hefur verið minnst á, áfram að þróast og festa sig í sessi. Þannig hlutu fyrstu A-stigs reiðkennarar FT réttindi sín árið 1988. Hvað verkaskipti Hóla og Hvanneyrar varðar hefur námið þróast á fyrrnefnda staðnum með atvinnugreinina; hrossarækt, tamningar, þjálfun og reiðkennsla í huga, en á hinu síðarnefnda með skírskotun til hins almenna iðkanda. Á Hvanneyri hófust þannig námskeiðin „Af frjálsum vilja“ undir forystu Ingimars Sveinssonar árið 1993 sem segja má að felist í útfærslu á tamningaaðferðum sem oft eru kenndar við Monty Roberts. Reynir Aðalsteinsson, fyrsti tamningameistari FT árið 1978 og einn af fyrstu A-stigs reiðkennurum FT, starfaði svo þar sem yfirreiðkennari frá árinu 2006 til 2012 er hann lést. Hann byggði þar upp reiðfræðslunámið Reiðmanninn sem ætlað er hinum almenna hestamanni og hófst árið 2008.

Annar tamningameistari FT, Eyjólfur Ísólfsson sem hlaut þá gráðu árið 1985 ásamt með Sigurbirni Bárðarsyni og þeir hlutu og A-reiðkennararéttindin í fyrsta hópnum, var ráðinn til Hóla snemma á tíunda áratugnum og starfaði þar, lengst af sem yfirreiðkennari, í 15 ár. Eyjólfur hefur jafnframt sinnt reiðkennslu mikið erlendis og er nú búsettur í Danmörku og gegnir m.a. stöðu prófessors í reiðmennsku við SLU en í Wången í Jämtlandi er t.d. miðstöð reiðkennslu á íslenskum hestum í Svíþjóð.

Strax árið 1992 hófst formlegt samstarf FT og Hólaskóla um kennslu í hestamennsku og árið 1994 fengu útskrifaðir nemar frá Hólum rétt til aðildar að FT. Árið 1996 var reiðkennara- og þjálfarabraut Hólaskóla og FT stofnsett og fyrstu reiðkennararnir voru útskrifaðir þá um vorið. Þetta nám var sprotinn að hestafræðideildinni. Jafnframt færðust öll inngöngupróf í FT til Hóla. Vitaskuld er það svo að hver getur haft sína skoðun á því hversu æskilegt er að færa starfsemi frjálsra félaga, eins og t.d. FT, undir ríkið, Hólaskóla í þessu tilviki, en hvað varðar vöxt og viðgang formlegs réttindanáms í hestamennsku er hér um stórvirki að ræða. Á þessum tíma gegndi Trausti Þór Guðmundsson embætti formanns FT og Jón Bjarnason, síðar alþingismaður og ráðherra, var skólastjóri á Hólum.

Hvanneyri og Hólar gerðu með sér samning um menntun í reiðmennsku á háskólastigi árið 1998, en á Hvanneyri hafði starfað háskóladeild allt frá árinu 1947. Árið 2000 var farið að bjóða upp á þriggja ára sérhæft hestafræðinám við Hólaskóla með áherslu á þjálfun og reiðmennsku, þar sem tvö seinni árin voru á háskólastigi.

Árið 2006 kom Hólaskóli fram með Knapamerkjakerfið til að nota við almenna en markvissa hestamennskukennslu. Knapamerkjakerfið, sem gefið er út í bókarformi, hefur fimm stig og gera efri stigin kröfu um umtalsverða getu. Kerfið var tekið upp í fræðslustarfi hjá hestamannafélögunum og er metið til eininga í framhaldsskólum. Í nokkrum skólum hafa síðan verið settar á laggirnar sérhæfðar hestamennskubrautir til stúdentsprófs.

Háskólinn á Hólum var síðan formlega stofnaður árið 2007 og tók við allri starfsemi sem áður var á vegum Bændaskólans á Hólum. Árið 2010 var tekið upp BS-nám í reiðmennsku og reiðkennslu á Hólum og er námið við hestafræðideildina í sífelldri þróun.

Niðurlagsorð
Þetta er síðasta greinin fyrir sumarleyfi og er um leið sleginn botninn í umfjöllun sögu íþróttakeppninnar, heimsleikanna og kennslu í hestamennsku. Í fyrsta tölublaði Feykis í september næstkomandi verður hafin umfjöllun um sögu hrossakynbóta en þar er af miklu að taka. Ég þakka þar með að sinni og vona að lesendur fái vel notið sumarsins.

Kristinn Hugason
forstöðumaður
Söguseturs íslenska hestsins

Áður birst í 22. tbl. Feykis  2021

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir