LÍV leggur fram launakröfur vegna komandi kjarasamninga
Landssamband ísl. verzlunarmanna, LÍV, kynnti Samtökum atvinnulífsins launkröfur sínar í komandi kjarasamningum á fundi í dag, þann 13. febrúar. LÍV leggur áherslu á að leiðrétta laun félagsmanna miðað við þær launahækkanir sem orðið hafa á vinnumarkaði síðustu misseri og metur kostnaðarauka atvinnulífsins innan þeirra marka sem fyrirtækin þola.
Meginatriði í launakröfum LÍV eru:
- Að samið verði til eins árs þar sem meðalhækkun launa er kr. 24.000, m.v. fullt starf.
- Við launahækkanir verði stuðst við launaþróunartryggingu að hámarki kr. 50.000 m.v. fullt starf. Frá þeirri upphæð dragast launahækkanir á tímabilinu 1. janúar 2014 til 28. febrúar 2015, þ.e. 2,8% sem samið var um í síðustu kjarasamningum og allar hækkanir umfram það.
- Að lágmarkslaun fyrir fullt starf verði kr. 254 þúsund.
- Kostnaðarauki atvinnulífsins vegna launakrafna LÍV er kr. 6,9 milljarðar eða 5,35% að mati félagsins.
Samningur til skemmri tíma
LÍV telur skynsamlegt að gera kjarasamning til skemmri tíma. Staðan á vinnumarkaði og í efnahagslífinu bindur hendur okkar og litlar forsendur eru fyrir langtímasamningi. Stöðugleiki í íslensku efnahagslífi stendur ótryggum fótum þar sem óvissa ríkir um afnám gjaldeyrishaftanna á þessu ári.
Launaþróunartrygging
Hækkanir í kjarasamningum opinberra starfsmanna síðustu misseri liggja til grundvallar kröfum LÍV um launabreytingar. Launaþróunartrygging, sem einnig er kölluð baksýnisspegill, er að mati LÍV best til þess fallin að leiðrétta á sanngjarnan hátt laun félagsmanna m.t.t þessara hækkana. Kröfugerðin leggur áherslu á að hækka laun þeirra sem lægstu launin hafa sem og millitekjuhópsins.
LÍV gerir kröfu um launaþróunartryggingu að upphæð kr. 50 þúsund fyrir þá starfsmenn sem hafa verið í starfi hjá sama launagreiðanda frá 31. desember 2013. Frá þessari upphæð dragast allar launahækkanir á tímabilinu frá 1. janúar 2014 til 28. febrúar 2015.liv
Grunnhækkunin, kr. 50.000, miðar þannig við laun félagsmannsins áður en núgildandi kjarasamningur tók gildi og dragast launahækkanir hans á gildistíma núverandi samnings frá. Það þýðir að 2,8% almenn launahækkun í upphafi árs 2014 og allar hækkanir umfram það dragast frá þessari grunnhækkun.
Hér er um að ræða leiðréttingu á síðasta kjarasamningi í ljósi þróunarinnar á vinnumarkaði frá því hann var gerður. Meðalhækkun félagsmanna samkvæmt þessum kröfum er um kr. 24 þúsund miðað við þau laun sem þeir hafa í dag, þeir sem hafa lægri laun fá hærri krónutöluhækkun en þeir sem hafa hærri laun (sjá mynd #2).
Dæmi um launaþróunartryggingu (miðað er við laun fyrir fullt starf):
Félagsmaður með lágmarkslaun í lok desember 2013 fékk kr. 204.000 í laun. Þann 1. janúar 2014 hækkuðu laun hans í kr. 214.000, skv. kjarasamningum. Launaþróunartrygging myndi færa þessum félagsmanni kr. 40.000 hækkun og yrðu laun hans því kr. 254.000 á mánuði.
Félagsmaður sem hafði kr. 350.000 í lok desember 2013 hækkaði í kr. 359.800 þann 1. janúar 2014 eða um 2,8%. Launaþróunartrygging myndi færa þessum félagsmanni kr. 40.200 hækkun og yrðu laun hans kr. 400.000 á mánuði.
Félagsmaður sem hafði kr. 700.000 í lok desember 2013 hækkaði í kr. 719.600 þann 1. janúar 2014 eða um 2,8%. Launaþróunartrygging myndi færa þessum félagsmanni kr. 30.400 og yrðu laun hans kr. 750.000 á mánuði.
Við útreikning á launaþróunartryggingu skal miða við heildarlaun, þ.e. föst og reglubundin viku- eða mánaðarlaun að viðbættum föstum álags- eða aukagreiðslum hverju nafni sem þær nefnast.
Grunnupphæð þeirra sem hófu störf á tímabilinu 2. janúar til 31. desember 2014 er kr. 30.000, að frádregnum launahækkunum á tímabilinu frá 2. janúar 2014 til 28. febrúar 2015.
Kostnaður fyrirtækja er 5,35%
Samkvæmt útreikningum nemur kostnaðaraukning atvinnulífsins vegna launahækkunar félagsmanna 6,9 milljörðum króna eða sem nemur 5,35%. Þá er ekki búið að taka tillit til þess að launahækkun leiðir til aukinnar einkaneyslu sem aftur skilar sér í tekjuaukningu fyrirtækja. Um 75-80% af launum fara í neyslu að meðaltali og má því gera ráð fyrir því að um 4 milljarðar af launahækkuninni, að teknu tilliti til skatta, skili sér aftur til atvinnulífsins. Það er vel innan þess ramma sem ásættanlegt er að mati LÍV.
Verslunarmannafélag Skagafjarðar
Hjörtur Geirmundsson