Náttúrubarnið Katrín Jakobsdóttir

Sigríður Gísladóttir, Hólmfríður Jenný Árnadóttir og Álfhildur Leifsdóttir. MYND AÐSEND
Sigríður Gísladóttir, Hólmfríður Jenný Árnadóttir og Álfhildur Leifsdóttir. MYND AÐSEND

Það þarf enginn að efast um mikilvægi náttúru- og umhverfisverndar fyrir Katrínu Jakobsdóttur. Löngu áður en slík mál komust í hámæli hjá almenningi eða náðu útbreiðslu í allri stjórnmálaflórunni voru þetta hennar hjartans mál og í raun ein ástæða þess hún hóf stjórnmálaþátttöku. Íslensk náttúra og umhverfismál skipta þjóðina afar miklu máli og því er mikilvægt að forseti Íslands sé manneskja sem hefur sýnt það í orðum og gjörðum að hún beri hag náttúrunnar fyrir brjósti.

Fyrir þremur árum talaði Katrín á málþingi Landverndar um þá staðreynd að á hálendi Íslands er að finna ein stærstu óbyggðu víðerni í Evrópu. Þar fór hún yfir hve umræða um náttúruvernd sé nátengd fullveldishugsuninni og hve þakklát við getum verið fyrir að almenningur megi njóta friðaðra Þingvalla óspilltra. Hún sagði það á okkar ábyrgð að vernda hin miklu verðmæti sem við eigum í víðernum hálendisins, fyrir okkur sjálf og komandi kynslóðir. Töfrana, víðáttuna, kyrrðina, birtuna og litrófið allt. Við eigum að geta notið ósnortinnar náttúru hvort sem við erum ríðandi í Austurdal í Skagafirði, siglandi um Breiðafjörð, hjólandi um Fjörðurnar eða hlaupandi í Dyrfjöllum.

Að hennar sögn skiptir miklu máli að gera fólki kleift að stofna og starfrækja samtök til að berjast fyrir jöfnuði og réttlæti í samfélaginu. Enda gegna slík samtök þýðingarmiklu hlutverki í að viðhalda þeim réttindum sem þegar hafa áunnist, veita stjórnvöldum aðhald og sjá til þess að réttindi fólks og fjölbreyttrar náttúru séu tryggð. Katrín hefur sem dæmi verið félagi í Landvernd gegnum tíðina og skilur mikilvægi frjálsra umhverfisverndarsamtaka og það aðhald sem slík samtök veita stjórnvöldum. Um­hverf­is­mál þurfa nefnilega að samtvinnast skyn­sam­legri stefnu í samfélags- og at­vinnu­mál­um, að við vinnum úr auðlind­um okkar með hug­viti og ný­sköp­un og ávallt með það í huga að öflugt at­vinnu­líf snúist um meira en eina lausn.

Hún hefur ekki látið sitja við að tala um þessa hluti heldur fylgt þeim fast eftir á Alþingi og hvar sem hún kemur. Hún hefur þannig staðið fyrir lagabreytingum um takmörkun á erlendu eignarhaldi jarða hérlendis og varað við því að landið okkar safnist á hendur fárra erlendra auðmanna í öðrum tilgangi en til landbúnaðarnotkunar og sjálfbærrar nýtingar. Þannig setur hún náttúruna í fyrsta sæti. Hún hefur talað fyrir auðlindaákvæði í stjórnarskrá, að sameign þjóðarinnar sé tryggð og að við ráðum sjálf yfir auðlindum okkar. Að öll grundvallarmál sem hefðu langtímaáhrif á samfélagið og ágreiningur væri um, líkt og sala Landsvirkjunar sem dæmi, yrðu tilefni til notkunar á málskotsréttinum(Kappræður RÚV, mín 30). Að loft, láð og lögur séu ekki óþrjótandi auðlind heldur dýrmæti sem okkur ber að standa vörð um og gæta um aldur og ævi með sjálfbærni og hófsemi að leiðarljósi. Sem forseti mun hún standa með náttúrunni, okkur öllum og framtíðinni til heilla.

Katrín gerir sér einnig grein fyrir því að til skapa réttlátt og sterkt samfélag er mikilvægt að hagsmunir fólks og náttúru fara saman og að í hversdagslífi okkar allra sé rúm fyrir náttúru- og umhverfisvernd. Fyrir 15 árum þýddu Katrín og Gunnar maður hennar bók um umhverfisvænt uppeldi, á tíma þegar náttúruvernd og umhverfisvænn lífsstíll þóttu ekki jafn mikilvæg leiðarljós í samfélaginu og þau gera nú. Af því tilefni sagði Gunnar í viðtali að við höfum áhrif á náttúruna, samfélagið og börnin okkar, beint eða óbeint og að við getum öll lagt okkar af mörkum við að vernda náttúruna og bæta samfélagið með umhverfisvernd og nægjusemi.

Katrín predikar ekki bara hófsemi, heldur er hún nægjusöm í sinni íbúð í blokk, fer gangandi flestra sinna ferða og lengst af á gömlum smábíl og er þannig sannarlega ekki vegprestur heldur fyrirmynd. Fyrirmynd sem við getum verið innilega stolt af.

 

Álfhildur Leifsdóttir, kerfisfræðingur og grunnskólakennari, Skagafirði

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir, leik- og grunnskólakennari, Reykjanesbæ

Sigríður Gísladóttir, dýralæknir og framhaldsskólakennari, Ísafirði

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir