Öll él birta upp um síðir.

Hjörleifur Júlíusson er búsettur í Lettlandi Blönduósi og víðar.Einar i Bólu bólu kin, 
ættaður frá Bakka.
Vandræðalaust má hafa að vin,
vægðarlaust má flakka.
 Hjör,

Sælir hugrökku Íslendingar.

Öll él birta upp um síðir.

Íslandsvinurinn Abramovich hefur í hyggju að leita eftir því að skrásetja bátinn sinn sem hann er að smíða í Þýskalandi á Blönduósi og samfara því að nú er verið að semja um smá aðstoð frá rússneska ríkinu til handa Íslandi , hefur hann því farið þess á leit að hann fái ókeypis hafnargjöld á Blönduósi um ókomin ár. En þar sem báturinn er á við 2 skuttogara að stærð þá hefur hann óskað eftir því að stækka höfnina með nýjum garði sem myndi byrja við Hafnarbraut 3, sunnan núverandi hafnargarðs .
Vita og hafnarmál er jákvætt og mun þessi ágæti íslandsvinur greiða allan kostnað af framkvæmdum.
Dýpi nýju hafnarinnar yrði um 75 metrar og yrði búin til neðanjarðar jarðhýsi yndir SKÚLAHORNINU fyrir á að giska 5 Murmansk gurskevoscy stanilniski atom orgelyfsky.
Hvað sem nú það nú þíðir.
Annað skilyrði er að hann Abramovich vill lengja flugbrautina a Blönduósi og nýja þverbraut frá Hjaltabakka upp að Hnjúkum .
Hann segir að hann þurfi þessa flugbraut fyrir flugvéla kost sinn sem er smá flugdeild innan Arkangelsky army rakett topolefskycxzopztr2.
Hvað svo sem það nú þíðir.
Þetta smá verkefni yrði að öllum líkindum greitt af íslenska ríkinu og yrði það sem greiðsla á vöxtum á láninu sem landsfeðurnir semja nú um í Moskvu,en unnið af þeim sem hafa flutt frá fyrrum nýlendum Rússa EISTUM ,LETTUM ,LITHÁUM , PÓLVERJUM , AUSTUR ÞJÓÐVERJUM og jafnvel fleirum sem hafa flutt til Íslands en greitt af Dumuni alþingi Rússa það er að segja höfuðstóllinn yrði greiddur af Dúmunni , og skaðabætur sem fyrrum hermenn rauða hersins hafa valdið Baugsklíkunni og öðrum sjoppu eigendum á FRÓNI í von um skjót fengin hagnað af verkum sinum á Íslandi og útflutningi á ýmsu sem ýmsir eru hættir að nota.

Samkvæmt fréttum héðan þá virðist vera góður gangur í viðræðum við Íslandsvinina i MOSKU og eru uppi ráðagerðir með olíuhreinsistöðvar fullvinnsla á timburafurðum málmbræðsla þvottur á illa prentuðum Dollurum en sá þvottur færi fram á SKAGASTRÖND með yfirstjórn af Bólukininu saman ber Jón Pálma Jónsson afa bróður mínum sem teiknaði nokkra seðla hérna um árið Í FYLLIRÍI á króknum og keypti vín fyrir og fór með frænda sínum Gunnari í VON ( Laugarvegur 55)í siglingu á VONINNI hring um Ísland en ferðin varð endasleppt og má lesa um það í annálum, þó svo hann kæmist undan vegna góðra sambanda við sýslumann Skagfirðinga og yrði síðan mold ríkur í Kanada með millilendingu í Noregi og Danaveldi , en Ísland var honum allt .

Án gríns.

Það er allt gott að frétta héðan úr Lettlandi her er kreppan búin að vera í tvö ár og gjaldmiðill landsins handónýtur yfir 20 prósenta verðbólga , Evrópu sambandið borgar tapið sem er náttúrulega herkostnaður við að NATO fékk aðstöðu her og nágrannarnir í austri fá innan gæsalappa að koma olíu og gas dollurunum sínum í umferð án þess að eftirlitið sé að þvælast of mikið fyrir , fyrirtæki fara á hausinn hægri vinstri en allt blessast , gjaldmiðillin sem heitir LATT er bundin við EVRU og engir gullgerðar menn ná að taka snúning á, á þann hátt sem gullgerðar skúnkarnir sem áttu bankana 3 á ÍSLANDI hafa gert og með ólíkindum að þessir gullgerðar menn fái að ganga lausir.

Og að vera hér úti og fylgjast með öllu þessu í gegn um netið er mjög svo dramatískt , hrekklausir bankastjórar seðlabankans sem ganga til venjulegra starfa dag hvern og vilja ekki vamm sitt vita eru yndir tönnum fólks hvern dag og nú er svo komið að sérstaklega Davíð Oddson lendir milli tanna fólks Davíð er strangheiðarlegur og gerir ekkert gegn betri vitund og þeir sem níða hann dag hvern og sérstaklega Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og hennar hyski að frátöldum viðskipta ráðherra mega hafa skömm fyrir , en hennar orð eru landráð og mun hún vera að greiða skuldir sínar við dæmda baugsveldið, og hin veldin ó dæmd.

vinnum fyrst af öllu saman ,

síðan má fara ofan í kjölinn og finna sökudólga og refsa þeim ,

saman stöndum ver, sundraðir föllum ver.

Og að lokum flöggum íslenska fánanum hvern einasta dag .

Áfram Ísland til síðasta blóðdropa ef þarf.

Baráttu kveðjur.

Hjörleifur Júlíusson

Fleiri fréttir