Reyndan mann í forystusætið
Nú á laugardaginn standa okkur Sjálfstæðismönnum margir góðir kostir til boða við val fólks á sterkan framboðslista flokksins til Alþingiskosninga. Það er mjög ánægjulegt að sjá hversu margt öflugt fólk er tilbúið að ljá krafta sína þjóðfélaginu til heilla. En við getum einungis valið 6 aðila af þeim 17 sem gefa kost á sér og þurfum því að gaumgæfa val okkar vel.
Ég tel að við eigum að velja Einar Kristinn Guðfinnsson til að leiða listann í komandi kosningum. Hann er með góða tengingu við fólk í öllu kjördæminu, sem er nauðsynlegt þegar kemur að því að vinna af krafti fyrir það allt. Það er nokkuð ljóst að það geta ekki öll svæði kjördæmisins átt fulltrúa í efstu sætum framboðslista og því þurfa þeir sem veljast þangað að hafa góða tengingu sem víðast í kjördæminu og hafa góða þekkingu á staðháttum þess.
Fyrir landbúnaðarhéröð, sem mörg eru í kjördæminu, er nauðsynlegt að hafa leiðtoga sem hefur þekkingu á innviðum landbúnaðarkerfisins, eins og Einar Kristinn hefur, eftir að hafa verið landbúnaðarráðherra á mjög erfiðum tímum. Ég tel hann hafa unnið eins vel úr málum landbúnaðarins og hægt hefur verið. Það sem ég hef heyrt bændur helst setja út á við hans störf er að hann hafi ekki staðið vörð um búvörusamningana og framlagning matvælafrumvarpsins. Þar tel ég Einar Kristinn hins vegar hafa unnið eins vel að málum og hægt var í þágu bænda. Þegar kom að niðurskurði fjárlaga í haust varð landbúnaðarráðherrann Einar Kristinn að lúta í lægra haldi fyrir félögum sínum í ríkisstjórninni, þar sem ekki stóð annað til boða en að búvörusamningurinn liti sömu lögmálum og almannatryggingabæturnar, þannig að ekki yrði um verðbætur að ræða á þeim á árinu 2009. Vilji hans stóð svo til að bæta sem best úr þeirri ráðstöfun með útfærslu á búvörusamningnum í samkomulagi við bændur, eins og kemur fram í grein formanns Bændasamtakanna í Bændablaðinu þann 26. febrúar s.l., en tími vannst ekki til að klára þá vinnu vegna stjórnarslitanna.
Varðandi matvælafrumvarpið, var það langt á veg komið, er Einar Kristinn tók við stóli landbúnaðarráðherra. Hann hefur tekið mjög mikið tillit til athugasemda bænda við lagfæringu á frumvarpinu og frestaði afgreiðslu þess til að vinna það betur eftir tillögum forystumanna bænda.
Einar Kristinn hefur einnig víðtæka þekkingu á sjávarútvegsmálum eftir að hafa verið ráðherra þess málaflokks. Í okkar kjördæmi er mikið byggt á þeirri atvinnugrein og spilar hún stórt hlutverk í endurreisn íslenska þjóðarbúsins. Því mun verða styrkur að hafa forystumann með þekkinguna og reynsluna sem Einar Kristinn hefur á þeim málum.
Einar Kristinn hefur, í sinni þingmennsku, unnið af krafti fyrir allt kjördæmið í mjög mörgum málaflokkum og eigum við að þakka honum það með því að styðja hann til að leiða framboðslista flokksins í kosningunum.
Tökum þátt í prófkjörinu og veljum þá sterku aðila sem við viljum láta vinna fyrir okkur, samfélagi okkar til hagsbóta. Auk Einars Kristins í fyrsta sæti þurfum við í efstu sæti framboðslistans kröftugar konur, athafnamenn og reynda bændur.
Guðný Helga Björnsdóttir
bóndi á Bessastöðum í Húnaþingi vestra
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.