Skólamál í Varmahlíð heildstæð lausn eða plástrar?

Opið bréf til íbúa sveitarfélagsins Skagafjarðar, foreldra og starfsfólks leikskólans, grunnskólans og tónlistarskólans í Varmahlíð
Fjallað var um málefni leik- og grunnskólanna í Varmahlíð í síðasta tölublaði Feykis í framhaldi af opnum fundi sem foreldrar barna á biðlista á leikskólanum Birkilundi Varmahlíð héldu fyrir stuttu.
Við undirrituð sem sitjum í samstarfsnefnd sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps fyrir hönd sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar, teljum rétt að fara betur yfir málefnið á þessum vettvangi og setja fram þau sjónarmið og rök sem voru forsenda afstöðu sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar við ákvörðunartöku. Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar staðfesti á fundi sínum 16. september sl. að færa starfsemi leikskólans Birkilundar í húsnæði Varmahlíðarskóla og farið verði í nauðsynlegar endurbætur á húsnæði grunnskólans.
Húsnæðismál
Forsaga þess að farið var að huga að framkvæmdum í Varmahlíð er eftirfarandi:
- á undanförnum árum hefur oft verið biðlisti eftir plássum við leikskólann Birkilundi,
- aðstaða starfsmanna í leikskólanum Birkilundi er óviðunandi,
- tímabært er að farið verið í endurbætur á húsnæði grunnskólans í Varmahlíð og nýta betur alla fermetra skólans,
- skólasamfélag þriggja skólastiga, leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla undir sama þaki og brúað bil milli skólastiga.
Forsagan
Á síðasta kjörtímabili var af hálfu samstarfsnefndar unnið með faglegar hugmyndir skólastjórnenda leikskólans og grunnskólans í Varmahlíð. Hugmyndirnar fólu í sér þá leið að báðum skólastigum yrði búinn staður í húsnæði grunnskólans ásamt tónlistarskóla. Unnar voru teikningar þar sem horft var til þess að framkvæmdir yrðu án mikilla breytinga á húsnæðinu. Þegar teikningar voru kynntar á fundi féllu þær í grýttan jarðveg íbúa og skólafólks, sérstaklega sá hluti sem snéri að útisvæði leikskólabarna sem teiknað var norðan við skólann. Fundað var með fulltrúum skólanna og foreldra, niðurstaða þeirra funda var að unnar yrðu teikningar að viðbyggingu við leikskólann ásamt því að endurskoðaðar yrðu fyrrnefndar teikningar grunnskólans og tekið yrði tillit til athugasemda sem komu fram við kynntar teikningar.
Staðan vorið 2015
Vorið 2015 var lokið við þessa vinnu, teikningar og kostnaðaráætlanir voru kynntar fyrir samstarfsnefnd sveitarfélaganna,
a) teiknuð viðbygging við leikskólann, fram kom að við þá framkvæmd þarf að færa veg og ryðja hluta af skógrækt.
b) teikning þar sem leikskólinn er staðsettur í húsnæði grunnskólans, í álmu á annari hæð þar sem nú er bókasafn skólans. Bókasafnið fært á fyrstu hæð og yrði við inngang sem gefur nýja möguleika á nýtingu safnsins. Jafnframt er tekið tillit til þarfa bekkjakennslu og sérgreina sem brýn þörf er á. Fram kom að þessum framkvæmdum má áfangaskipta.
Í báðum þessum teikningum er um hugmyndir að ræða sem eftir er að fullhanna í samvinnu við hagsmunaaðila. Áætlaður kostnaður viðbyggingu við leikskólann er 160 milljónir. Kostnaður við framkvæmdir við húsnæði grunnskólans er áætlaðaður 360 milljónir. Þegar kostnaður við grunnskólann er skoðaður er vert að hafa í huga að þar er bæði um að ræða kostnað vegna leikskólans og verulegar endurbætur á húsnæði grunnskólans.
Hvað svo
Sveitarfélögin tóku sér tíma til að skoða teikningar og kostnaðaráætlun en komust því miður ekki að sömu niðurstöðu. Fram hefur komið að það er á ólíkum forsendum, Akrahreppur hefur lýst því yfir að hann hafi ekki fjárhagslega getu til að fara í aðra framkvæmd en viðbyggingu við leikskólann. Afstaða Sveitarfélagsins Skagafjarðar byggist á því að það er eindreginn vilji allra flokka í sveitarstjórn að koma húsnæðismálum skólanna í Varmahlíð í gott og viðunandi horf, skólastarfi og samfélaginu til heilla. Er það rökrétt framhald af skólaframkvæmdum á Sauðárkróki undanfarin ár. Það er okkar mat, það, að tengja saman þessi þrjú skólastig, leik-grunn- og tónlistarskóla undir sama þaki, muni efla nálgun á nútíma skólastarf sem kallar á að skólastig tengi sig meira saman með það að meginmarkmiði að efla sig í því lögbundna hlutverki að búa nemendur undir líf og starf í framtíðinni. Þessi framkvæmd mun geta gert það að verkum, að nemendur verða hæfari og færari til að takast á við fjölbreytileika framtíðarinnar. Einnig bendum við á, að með þessari framkvæmd getur falist mikið hagræði, ekki aðeins í rekstri og umfangi skólanna, heldur einnig fyrir foreldra, nemendur og starfsfólk.
Þetta er staðan í dag og þótt nýlega hafi samstarfsnefnd komist að sameiginlegri niðurstöðu með að finna lausn til bráðabirgða til að taka inn börn sem eru á biðlista leikskólans þá má sú lausn ekki verða til frambúðar. Sveitafélagið Skagafjörður hefur lýst sig reiðubúið til að taka á sig meiri kostnað við þessa framkvæmd en 25% eignarhlutur Akrahrepps segir til um og kynnt hugmyndir um útfærslu fyrir fulltrúum Akrahrepps, og er það einlæg von okkar að fundin verði lausn á þessari pattstöðu og framkvæmdir á varanlegu skólahúsnæði í Varmahlíð verði að veruleika á næstu árum.
Með vinsemd og virðingu,
Gunnsteinn Björnsson, formaður samstarfsnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps og sveitarstjórnarfulltrúi Svf. Skagafirði.
Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, fulltrúi Sveitarfélagsins Skagafjarðar í samstarfsnefnd og sveitarstjórnarfulltrúi Svf. Skagafirði.
[Grein birt í 40. tbl. Feykis, sem kom út fimmtudaginn 22. október 2015]