Steven Gerrard í uppáhaldi :: Liðið mitt Ragnar Þór Jónsson

Ragnar Þór telur að hans menn í Liverpool komi sterkir til leiks eftir HM. Aðsend mynd.
Ragnar Þór telur að hans menn í Liverpool komi sterkir til leiks eftir HM. Aðsend mynd.

Ragnar Þór Jónsson, húsasmiður Hofsósi, er Liverpoolmaður og spáði sínu liði í toppbaráttuna en er orðinn eitthvað efins eftir slæma byrjun á þessu tímabili. Hann er þó mun bjartsýnni á gengi liðsins í Meistaradeildinni og spáir toppárangri. Hann hefur einu sinni farið á leik og sá þá gullaldarlið Liverpool spila, og þá voru innan borðs helstu goðsagnir félagsins. Ragnar Þór svarar hér spurningum í Liðinu mínu.

Hvert er uppáhalds liðið þitt í enska boltanum og af hverju? -Liverpool, veit ekki af hverju. Ég var mjög ungur þegar ég byrjaði að halda með Liverpool en þá sá maður leikina viku gamla, heillaðist af Kevin Keegan á sínum tíma.

Hvernig spáir þú gengi liðsins á tímabilinu? -Spáði þeim 2. sæti en efast um að það náist. Hélt að ekkert lið myndi vinna Man. City í vetur en Arsenal trónir á toppnum enn sem komið er og hafa komið á óvart með mjög skemmtilegri spilamennsku. Held að Liverpool verði í topp fjórum þegar deildin klárast og eigum við ekki bara að segja að Liverpool vinni Meistaradeildina.

Ertu sáttur við stöðu liðsins í dag? -Nei, alls ekki. Byrjuðum tímabilið mjög illa og allra verst var að tapa fyrir Leeds þar sem mjög margir minna vina eru Leedsarar.

Hefur þú einhvern tímann lent í deilum vegna aðdáunar þinnar á umræddu liði? -Já, mörgum sinnum, gerist oft í hita leiksins þegar margir eru að horfa.

Hver er uppáhaldsleikmaðurinn fyrr og síðar? -Steven Gerrard.

Hefur þú farið á leik með liðinu þínu? -Já, einu sinni sá ég þá spila á White Hart Line 1984, töpuðum fyrir Tottenham 1-0 og það var mikil upplifun þar sem þetta var fyrsta kvöldið mitt í útlöndum á ævinni. Þarna sá ég gullaldarlið Liverpool spila, þar sem þeir unnu marga titla á tíu ára tímabili. Má þar nefna Ian Rush, Sammy Lee, Jan Molby, Alan Kennedy, Bruce Grobbelaar, Kenny Daglish o.fl. Ógleymanlegur leikur, svo er ég alltaf á leið á Anfield, stefni á það í vetur. Langar að sjá þá á Anfield með Klopp við stjórnvöldin.

Áttu einhvern hlut sem tengist liðinu? -Já treyju og bolla.

Hvernig gengur að ala aðra fjölskyldumeðlimi upp í stuðningi við liðið? -Það gekk ekki mjög vel. Elsti sonur minn er harður Liverpool maður, yngri sonurinn heldur með Man. United og skil ekki hvað klikkaði, dóttirin heldur með Chelsea. En öll barnabörnin mín halda með Liverpool!

Hefur þú einhvern tímann skipt um uppáhalds félag? -Nei, það gerir maður ekki.

Uppáhalds málsháttur? -Sá hlær best sem síðast hlær.

Einhver góð saga úr boltanum? -Ekki beint saga en verð að minnast á úrslitaleikinn í Meistaradeildinni 2005 þegar Liverpool mætti AC Milan. Staðan var 3-0 í hálfleik og þetta virtist búið en Liverpool jafnaði í seinni, þá var framlengt og við unnum í vítaspyrnukeppni. Þessum leik gleymi ég aldrei.

Einhver góður hrekkur sem þú hefur framkvæmt eða orðið fyrir? -Nei, ekki sem ég man.

Spurning frá Höllu Stefáns: -Er Liverpool komið í gang eftir glæsilegan sigur á Man. City um helgina? [16. október].

Svar: -Hélt það en svo hafa komið of margir tapleikir. Held að við komum sterkir til leiks eftir HM, vonandi með alla heila.

Hvern myndir þú vilja sjá svara þessum spurningum? -Elvar Birgisson, Ríp.

Hvaða spurningu viltu lauma að viðkomandi? -Ertu bjartsýnn á það að Man. United sé komið með stjóra sem mun vera lengur en eitt til tvö tímabil eins og hefur verið síðustu ár?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir