Stöðugleiki og stefnufesta – tækifærin framundan

Húnaþing vestra er gott samfélag til dvalar og búsetu. Þjónustustig er hátt og álögur lægri en víða annarsstaðar. Pólitískur stöðugleiki hefur einkennt líðandi kjörtímabil og þar hafa allir sveitarstjórnarfulltrúar hvar svo sem í flokki þeir standa lagt drjúgt lóð á vogarskál. Með þennan pólitíska stöðugleika í farteskinu hafa mörg mikilvæg framfaramál náð fram að ganga. D–listinn leggur áherslu á áframhaldandi pólitískan stöðugleika og býður fram krafta sína með blöndu af reyndu og nýju fólki til að standa vörð um gott og dýrmætt samfélag og nýta enn frekar tækifærin sem eru til staðar í okkar héraði.

Við höfum fólkið í sveitarfélaginu í forgrunni og það gerðum við t.a.m. í gegnum heimsfaraldurinn þar sem við lögðum áherslu á að verja störf og um leið grunnþjónustu samfélagsins. Einn mikilvægasti þáttur grunnþjónustunnar eru skólamálin en þar hefur grettistaki verið lyft á kjörtímabilinu með byggingu grunn- og tónlistarskólahúsnæðis undir sama þaki. Öll sú uppbygging miðar að því að leggja megi enn frekari áherslu á faglegt starf sem skilar börnunum okkar góðu veganesti út í lífið. Þá er einnig afar mikilvægt að skapa fjölskylduvænt samfélag í sveitarfélaginu og að áfram verði hlúð að eldri borgurum.

Við leggjum ríka áherslu á að bæta samgöngur og efla innviði og byggja ofan á þá vinnu sem unnin hefur verið í þeim málaflokki. Samgöngu- og innviðaáætlun SSNV var samþykkt vorið 2019 og síðan var endurskoðuð áætlun samþykkt vorið 2022. Í þessari áætlun er tæpt á því helsta sem brennur á okkar samfélagi í samgöngu- og innviðamálum s.s.; uppbygging og viðhald tengivega og annarra vega með Vatnsnesveg í sameiginlegum forgangi á Norðurlandi vestra, betra fjarskiptasamband um allt héraðið og tryggt afhendingaröryggi raforku með styrkingu dreifi- og flutningskerfis. Mikið innviðaátak hefur verið unnið af hálfu sveitarfélagsins með endurnýjun hitaveitu í þéttbýli og við lagningu hitaveitu í dreifbýli árin þar á undan. Áfram skal haldið með endurnýjun í þéttbýli og nýframkvæmdir í dreifbýli.

Við viljum stuðla að fjölskylduvænu og heilsueflandi samfélagi fyrir unga sem aldna. Í því sambandi er ánægjulegt að nefna að Húnaþing vestra er orðið formlegur þátttakandi í verkefninu heilsueflandi samfélag þar sem heilsa og líðan íbúa er höfð í fyrirrúmi og áþreifanleg í allri stefnumótun. Mikilvægt er að allir íbúar sveitarfélagsins geti fundið eitthvað við sitt hæfi þegar kemur að íþrótta, tómstunda- og menningarmálum í sveitarfélaginu. Við viljum kanna frekari möguleika á þessum sviðum.

Umhverfismál er okkur hugleikin og viljum við halda áfram með þá vinnu sem unnin hefur verið undanfarin ár. Ný lög um sorphirðu taka gildi um næstu áramót og verða innleidd í áföngum. Þau kalla á nýja hugsun m.t.t. neyslu íbúa og almennings og enn frekari flokkun og endurnýtingu sem aftur horfir til umhyggju fyrir náttúrunni og móður jörð.

Atvinnumál með landbúnað í öndvegi eru grundvallaratriði í okkar héraði líkt og víðar. Við leggjum áherslu á að skapa umhverfi sem styður við fjölbreytta atvinnustarfsemi. Fjölbreytt, framsækin og sístæð verðmætasköpun er undirstaða lífskjara í okkar samfélagi og þjóðfélagi.

Við leggjum höfuðáherslu á ábyrga fjármálastjórn en sveitarsjóður þarf að ná vopnum sínum að nýju eftir stærstu framkvæmdir í sögu sveitarfélagsins í formi skólabyggingarinnar. Ábyrg fjármálastjórn mun auðvelda okkur að takast á við þau verkefni sem framundan eru í bráð og lengd eins og stuðningur við byggingu aðstöðuhúss í Kirkjuhvammi, lagningu frekari hitaveitu í Hrútafirði, klára endurnýjun hitaveitulagna á Hvammstanga og lagningu ljósleiðara þar og á Laugarbakka, viðhald og endurbætur á Félagsheimili Hvammstanga, gatnagerð í Túnahverfi og undirbúning að stækkun leikskólans.

Tækifærin eru við hvert fótmál í okkar ágæta sveitarfélagi og þau viljum við nýta sem best. Við erum á réttri leið og biðjum um þitt umboð, kjósandi góður, til að leiða sveitarfélagið áfram veginn næstu fjögur ár.

 

Magnús Magnússon

oddviti D-lista sjálfstæðismanna og óháðra í Húnaþingi vestra

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir