Virkjanastopp, sama vesen, sitt hvor hliðin! :: Guðmundur Haukur skrifar

Með ákvörðunum sveitarstjórna Skeiða- og Gnúpverjahrepps, Húnabyggðar og Ásahrepps um að staldra við í skipulagsmálum orkumannvirkja þar sem orkuvinnsla í núverandi lagaumgjörð þjóni ekki hagsmunum sveitarfélaganna er í raun komið virkjanastopp á Íslandi. Það þykir að sjálfsögðu bagalegt, sem það er. Raforkuframleiðsla Landsvirkjunar er fullnýtt og ekki er til meiri orka á sama tíma og orkuskiptin eru framundan. Það verður því að bretta upp ermar og byrja að virkja fyrir þjóðina!

Ég tek undir það en fyrst verður að laga leikreglurnar. Nærumhverfi orkuvinnslu verður að fá hlutdeild í þeim efnahagslega ábata sem verður til við að framleiða orku. Sú hlutdeild er forsenda þess að byggja upp samfélög í . Sá tími sem nærumhverfi orkuvinnslu fær enga hlutdeild í verðmætunum er liðinn. Allur efnahagslegur ávinningur af orkuvinnslu kemur fram þar sem orkan er notuð en ekki þar sem orkan verður til – það er staðreynd.

En það eru margar hliðar á teningnum. Nú er staðan í Húnabyggð þannig að ekki er hægt að fá hitaveitu í nýtt iðnaðarhúsnæði. Það er hægt að fá ný íbúðarhús tengd við hitaveituna en ekki atvinnuhúsnæði. Hvernig á að vera hægt að byggja upp atvinnu í Húnabyggð ef atvinnuhúsnæði fær ekki heitt vatn. Fær ekki orku til að hita húsin sín! Árið 2005 keypti RARIK hitaveituna af Blönduósbæ. Hluti af samkomulaginu var að efla starfsstöðina á Blönduósi. Hefur verið staðið við það – Nei. Er verið að vinna hörðum höndum að því að afla meiri orku til að uppbygging geti átt sér stað – undirritaður sem er oddviti Húnabyggðar veit ekki til þess.

Við íbúar sveitarfélagsins erum ekki upplýst. Hvenær má vænta þess að meira heitt vatn verði til afhendingar, það veit enginn. Það er allavega ekki verið að leita að heitu vatni eftir því sem ég best veit. Er RARIK að beita sveitarfélaginu Húnabyggð virkjanastoppi? Hver á Rarik? Við vitum það náttúrlega öll, Rarik er í eigu þjóðarinnar og með alla sína starfssemi á landsbyggðinni. Samt eru höfuðstöðvar RARIK í Reykjavík þar sem 50 verðmætustu störfin eru. Þar eru teknar ákvarðanir um framtíð orkuöflunar fyrir íbúa Húnabyggðar.

Eru einhverjir í höfuðstöðvum RARIK að reyna að leysa orkuvandann í Húnabyggð? Samkvæmt mínum upplýsingum sem oddviti Húnabyggðar er svarið við því NEI. Á Húnabyggð að taka þátt í því að leysa orkuvanda þjóðarinnar með því að skipuleggja frekari orkumannvirki í sveitarfélaginu sem skila okkar samfélagi engum ávinning. Ég held að allir viti svarið við því, sem er nei, svo ráðamenn þjóðarinnar geta ekki undrast yfir virkjanastoppi á Íslandi!

Guðmundur Haukur Jakobsson
Forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir