Yfirlýsing Samband íslenskra sveitarfélaga vegna málefna hælisleitenda

Samband íslenskra sveitarfélaga harmar þá stöðu sem upp er komin í málefnum hælisleitenda sem njóta ekki lengur grunnþjónustu skv. breyttum útlendingalögum. Af viðbrögðum einstakra fulltrúa ríkisstjórnarinnar í fjölmiðlum má ráða að ábyrgðin sé nú alfarið á höndum sveitarfélaganna.

Sambandið getur ekki tekið undir það og telur ljóst að þeir vankantar sem eru á lögunum hafi verið fyrirsjáanlegir enda benti sambandið á þá í umsögn sinni um lögin á síðasta ári. Þar krafðist sambandið þess að skýrt yrði hvað tæki við eftir að 30 daga fresti frá synjun um stöðu hælisleitanda lýkur. Á því tímamarki fellur réttur einstaklings til grunnþjónustu niður þar sem sveitarfélög bera ekki ábyrgð á að veita fólki þjónustu sem dvelur í landinu án tilskilinna leyfa.

Með þessum vanköntum á lögunum eru sveitarfélög landsins sett í afar erfiða stöðu gagnvart þessum viðkvæma hópi. Ekkert samtal hefur farið fram milli ríkis og sveitarfélaga um hvað tekur við hjá þeim hælisleitendum sem misst hafa framfæri sitt hjá ríkinu og eru án kennitölu og réttinda í landinu.

Sambandið telur skýrt að þessi málaflokkur sé á ábyrgð ríkisins og að nauðsynlegt sé að þau ráðuneyti sem málaflokkurinn fellur undir geri viðeigandi ráðstafanir til að tryggja umræddum einstaklingum þak yfir höfuðið og framfærslu, þar til viðkomandi einstaklingar fara úr landi.

 

/Fréttatilkynning

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir