1. deild karla á SportTV í sumar

KSÍ og SportTV  hafa komist að samkomulagi um að sýnt verði frá leikjum 1. deildar karla í sumar á SportTV á vefsvæðinu  http://www.sporttv.is/.  Sýndur verður a.m.k. einn leikur í hverri umferð og einnig er stefnt að því að teknar verði saman markasyrpur í hverri umferð sem einnig verða sýndar á SportTV.  Útileikur Tindastóls gegn Haukum verður sýndur nk. laugardag.

Þetta er góð viðbót við umfjöllun um íslenska knattspyrnu en 1. deild karla hefst nú á laugardaginn með sex leikjum en hér má sjá hvaða leikir verða sýndir í fyrstu umferðunum

 

lau. 12. maí. 14:00 Haukar - Tindastóll

lau. 19. maí. 14:00 Víkingur R. - ÍR

fös. 25. maí. 20:00 Þróttur R. - Leiknir R.

lau. 02. jún. 16:00 Fjölnir - KA

lau. 09. jún. 14:00 Haukar - Leiknir R.

lau. 16. jun. 14.00 Þróttur R. - BÍ/Bolungarvík

fim. 21. jun. 20.00 KA – Þór

Fleiri fréttir