10 leiðir til að tjútta upp taglið!!
Tagl er ein af þeim hárgreiðslum sem er einna vinsælust hjá glamúrpíum hvunndagsins. Það er rosalega þægilegt þegar asinn er mikill að grípa bara næstu teygju, böðla hárinu upp í tagl og æða af stað, og nýtir Fröken Fabjúlöss sér þetta ráð óspart!
En það er líka rosalega gaman að vera smart og lekker þó maður sé að flýta sér, og oft tekur ekki langann tíma að pimpa upp taglið þannig að útlitið verði elegant og fágað, og fór Fröken Fabjúlöss í það verkefni að grafa upp nokkrar aðferðir við taglhnýtingar (Og þar sem Fröken Fabjúlöss er ekki alveg svona kríeitív í hári, þá fékk hún þessar upplýsingar lánaðar af http://blog.hairandmakeupbysteph.com):
1. Vefja hárlokk utan um taglið:
- Settu í þig tagl eins og þú myndir gera undir venjulegum kringumstæðum
- Taktu smá lokk undir taglinu og vefðu honum utan um teygjuna
- Festu lokkinn með ömmuspennum og hárspreyji
2. Vefja fléttu utan um taglið:
- Settu í þig tagl eins og þú myndir gera undir venjulegum kringumstæðum
- Taktu smá lokk undir taglinu og fléttaðu hann
- Vefðu fléttunni utan um teygjuna
- Festu með ömmuspennum og hárspreyji
3. Fléttað á hliðinni:
- Skipta hárinu, frá eyra og upp að miðju sirka eða eins stórt svæði og þú ætlar að flétta, taktu allt hitt hárið frá í spennur.
- Fléttaðu, hægt er að gera fasta fléttu, ranghverfa fasta fléttu, fiskifléttu, snúna fléttu eða bara nákvæmlega það sem hjartað segir þá stundina! Hægt er að gera eina fléttu, tvær, þrjár eða eins margar og þykkt hársisn býður upp á.
- Þegar fléttan (eða flétturnar) er tilbúin, sameinaðu þá flétturnar og lausa hárið og smelltu öllu í tagl.
4. Túberað efst:
- Á meðan hárið er slegið, túbera efst- nema fremsta lagið á toppnum, leggja svo hárið aftur þannig að það sé falleg lyfting í því
- Bæta hárvaxi eða hárspreyji með fingrunum, til að fá fallega áferð
- Setja hárið í tagl, en passa að tosa ekki of mikið í túberaða hlutann þannig að hann fletjist ekki út
- Eftir að hárið er komið í tagl er líka hægt að tosa örlítið í það efst til að fá smá betri lyftingu í taglið
5. Retró tagl:
- Byrja á að ákveða hvar skiptingin á að vera í toppnum, fyrir retró lúkk er þumalputtareglan sú að þeim mun lengra inn á hliðina sem skiptingin er, þeim mun betra
- Taktu toppinn frá, hafðu hann svolítið langt inn á hvirfillinn (svona sirka 5-8 sentimetra), settu allt annað í hátt tagl
- Krulla endana á taglinu í stóra liði og túbera aðeins við teygjuna til að fá meiri lyftingu
- Bursta aðeins í gegnum krullurnar til að lúkkið verði meira retró
- Taka toppinn, túbera aðeins undir til að fá smá lyftingu, greiða hann svo til hliðar og annaðhvort tylla honum á bak við eyrað eða festa hann með spennu.
6. "Hestatagl" með hliðartopp:
- Slétta hárið og setja smá serum í það til að fá fallega áferð
- Skiptu hárinu til annarar hliðar
- Túbera pínulítið við rótina í toppnum til að fá smá lyftingu
- Settu hárið í tagl neðst við hálsinn, svokallað "hestatagl", og passa upp á að allt líti vel út
7. Snúa toppinn aftur:
- Skipta hárinu þannig að toppnum er tekinn til hliðar, sirka 5-8 cm inn á hvirfilinn, afgangur af hári settur í spennu
- Taka toppinn og annaðhvort snúa hann upp í fallegann snúning eða gera fasta fléttu
- Sameina fléttuna og afgang af hárinu og setja í tagl
8. Túberaður toppur:
- Túbera toppinn
- Nota fingurna til að skipta hárinu miðað við hvað toppurinn á að ná langt inn á hvirfil
- Greiða toppinn lauslega aftur án þess að fletja út túberinguna, festa hann með spennum
- Smella afgang af hárinu í tagl
9. Snúið tagl:
- Taka allt hárið í laust tagl sem liggur við hálsinn
- Toga teygjuna aðeins niður til að losa betur um taglið
- Fara með fingurna undir taglið og upp í gegn við rót taglsins, þannig að það myndist smá gat
- Snúa taglinu upp og toga hárið í gegnum gatið
- Þegar hárið er komið í gegn, toga þannig að strekkist á taglinu og slétta úr ójöfnum
10. Flétta upp hnakkann:
- Skipta hárinu í tvennt, frá eyra til eyra
- Taka efri partinn og setja í bráðabirgðatagl
- Snúðu höfðinu niður, greiða úr hárinu og flétta fasta fléttu upp með hnakkanum
- Þegar fléttan er tilbúin, sameina hana við restina af hárinu og henda í annaðhvort tagl eða snúð
Fröken Fabjúlöss vill svo minna á naglaökkunarleikinn sem er í fullum gangi, allt um hann má lesa hér og hlakkar til að fá fleiri myndir frá ykkur :)