100 hjálmar á 7 ára börn á Norðurlandi vestra

Kiwanisklúbburinn Drangey afhenti á laugardaginn tæplega 70 reiðhjólahjálma til allra 7 ára barna í Skagafirði.  Þá hefur klúbburinn einnig afhent um 30 hjálma í Húnavatnssýslunum en þeir voru afhentir í síðustu viku.

Foreldrar mættu með krökkunum til að taka á móti hjálmunum og ríkti mikil ánægja með þá.  Að lokinni afhendingu voru í boði grillaðar pylsur sem runnu ljúft niður hjá viðstöddum.
Þeir hjálmar sem ekki voru sóttir verða keyrðir heim til viðkomandi barna.

Á heimasíðu Kiwanisklúbbsins er að finna myndir frá afhendingunni.

Fleiri fréttir