17. júní hátíðarhöld á Sauðárkróki

Frá hátíðarhöldum á Sauðarkróki 2016. Mynd: Berglind Þorsteinsdóttir.
Frá hátíðarhöldum á Sauðarkróki 2016. Mynd: Berglind Þorsteinsdóttir.

Það verður haldið hátíðlega uppá þjóðhátíðardaginn 17. júní á Sauðárkróki. Hátíðin hefst klukkan 12:30 á Skaffóplaninu en þar verður boðið uppá andlitsmálun og hestafjör. Síðan verður marserað í skrúðgöngu á Íþróttavöllinn þar sem hátíðardagskrá mun fara fram. Þar mun Karlakórinn Heimir, Leikfélag Sauðárkróks, Atli Dagur og fleiri stíga á svið. 

 

Fleiri fréttir