200 þúsund söfuðust fyrir björgunarsveitirnar
Veitingastaðurinn Ólafshús á Sauðárkróki hélt styrktarkvöld til styrktar Björgunarsveitanna í Skagafirði í gær, fimmtudaginn 22. nóvember, með því að vera með pizzahlaðborð en allur ágóðinn rann beint til björgunarsveitanna. Að sögn Kristínar Magnúsdóttur annars eiganda veitingahússins voru undirtektir bæjarbúa mjög góðar og söfnuðust tæpar 200 þúsund krónur.
Veitingahúsið Ólafshús á Sauðárkróki.
„Þetta mun klárlega koma sér vel fyrir sveitina en nóg hefur verið að gera síðustu vikur hjá meðlimum hennar, eða núna þurfum við eiginlega að fara að tala um síðustu mánuði! Þökkum við þeim Sigga Dodda og Kristínu fyrir skemmtilegt framtak,“ segir á heimasíðu Skagfirðingasveitar
Hver sveit fær því 65 þúsund krónur í sinn hlut, þ.e. Skagfirðingasveit á Sauðárkróki, Grettir á Hofsósi og Flugbjörgunarsveitin í Varmahlíð.