29 leiksýningar í Bifröst

Á heimasíðu Árskóla segir frá því að síðustu vikur hafa nemendur Árskóla verið önnum kafnir við árshátíðar-sýningar og undirbúning og má með sanni segja að einkunnarorð skólans LIFA-LEIKA-LÆRA hafi verið ríkjandi í skólastarfinu. Árshátíð miðstigs var í byrjun mars. Þar var 5. - 7. bekkur með tveggja daga árshátíð þar sem þemað var stjörnur og voru tvær sýningar hvorn dag fyrir fullu húsi. Ágóði sýninganna rann í ferðasjóð 7. bekkjar, en nemendur í 7. bekk hafa unnið að fjáröflun í vetur fyrir ferðasjóð sinn. Um þessar mundir eru þeir í óða önn að leggja drög að skólablaði sínu, Skólatralli, sem kemur út á vordögum.

4. bekkur var með sína árshátíð í Bifröst 7. mars og tókst hún með miklum ágætum.

10. bekkur frumsýndi barnaleikritið Glanna glæp í Latabæ 29. mars. Leikstjóri var Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson, en auk hans komu umsjónarkennarar í 10. bekk og fleiri starfsmenn að aðstoð við búninga, söng o.fl. Allir nemendur 10. bekkjar komu að sýningunni, sumir sem leikarar, aðrir með hlutverk á bakvið tjöldin, s.s. sviðsmenn, smiðir, miðasölufólk, nokkrir sáu um förðun, leikmuni, búninga og hárgreiðslu eða sinntu tæknimálum. Allur ágóði af sýningunum rennur í ferðasjóð 10. bekkinga, en stefnt er á Danmerkur- og Svíþjóðarferð í vor.

Nemendur yngsta stigs héldu árshátíðir sínar í Bifröst nú í byrjun apríl og tókust þær með miklum ágætum.

1. bekkur sýndi að venju Ávaxtakörfuna og hefur sú hefð gefið góða raun. 2. bekkur sýndi Dýrin í Hálsaskógi og 3. bekkur Kardemommubæinn, að sjálfsögðu í styttri útfærslu sem hentar ungum og upprennandi leikurum.

Með leiksýningum 8. og 9. bekkjar fyrir jól telst okkur til að sýningar nemenda í Bifröst á þessu skólaári séu 29 og flestar fyrir fullu húsi, sem þýðir að hátt í 3000 manns hafa séð leiksýningarnar.

Fleiri fréttir