2.flokkur með góðan sigur
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir
12.07.2010
kl. 08.39
Það var sameiginlegt lið Tindastóls, Hvatar og KS/Leifturs sem fór með sigur af hólmi er liðið mætti Breiðablik en leikurinn var oft á tíðum nokkuð harður og þurfti dómari leiksins oft að grípa til spjalda sinni.
Heimamenn voru sterkari aðilinn og var sigurinn sanngjarn. Í okkar liði eru margir bráðefnilegir leikmenn sem svo sannarlega eru að stíga upp og láta þjálfara sinn vita að þeir séu tilbúnir í stærri verkefni.
Mörk okkar skoruðu þeir Hilmar ( 2 ) og Atli og Hallgrímur sitt markið hvor.
Hinn sterki varnarmaður Tindastóls Björn Anton meiddist í leiknum og var fluttur á sjúkrahúsið til aðhlynningar.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.