Tröll geta verið krútt
Ímyndanaraflið fékk að malla af miklum móð á Héraðsbókasafni Skagfirðinga á Sauðárkróki nú á mánudaginn. Þá mætti brúðulistakonan Greta Clough frá Hvammstanga til leiks og leiðbeindi áhugasömum ungum listamönnum í tröllagerð. Tröllabrúðusmiðja fyrir börn var hluti af dagskrá barnamenningarhátíðarinnar Skúnaskralls sem lauk reyndar í gærkvöldi með skralli á Blönduósi.
„Þetta er í annað sinn sem Greta heldur slíka smiðju á bókasafninu og óhætt er að segja að sköpunargleðin hafi verið engu minni en í fyrra skiptið. Þátttakendur fengu að gefa hugmyndafluginu lausan tauminn og skapa sínar eigin tröllabrúður,“ segir í frétt á vef Skagafjarðar en þar má sjá fleiri myndir frá tröllagerðinni.
