Bifreiðaþjónustan Snær tekin til starfa á Skagaströnd

Mynd af síðu Skagastrandar.
Mynd af síðu Skagastrandar.

Feðgarnir Patrik Snær Bjarnason og Bjarni Ottósson hafa nýlega kynnt til leiks bifreiðaþjónustu sína, Snæ ehf. Á Facebook-síðu Skagastrandar segir frá því að fyrirtækið býður upp á helstu bílaviðgerðir, neyðarþjónustu, bílaflutninga auk þjónustu á sviði krana- og gröfuverktöku. Síðastliðið sumar sinntu feðgarnir meðal annars fjölbreyttum verkefnum fyrir bílaleigur og aðstoðuðu ferðamenn á ferð um Norðurland.

Patrik er uppalinn á Skagaströnd en flutti nýlega aftur heim ásamt fjölskyldu sinni. Hann segist ánægður með að vera kominn aftur á heimaslóðir. Eftir að hafa starfað við sjómennsku hefur hann nú snúið sér að nýjum verkefnum og kann mjög vel við að vinna með föður sínum.

„Það er ánægjulegt að nýtt fyrirtæki taki til starfa á Skagaströnd sem stuðlar að fjölbreyttari þjónustu fyrir íbúa og fyrirtæki á svæðinu,“ segir á Fcebook-síðu Skagastrandar.

Fleiri fréttir