33% Skagfirðinga á þorrablót um helgina

Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum Feykis munu vel yfir 1300 manns sitja við trog og blóta þorrann en það mun vera um 33% íbúa héraðsins.

Að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar yfirlögregluþjóns á Sauðárkróki verður viðbúnaður lögreglu nægur ef á þarf að halda enda hafa þorrablótsskemmtanir Skagfirðinga farið afskaplega friðsamlega fram undanfarin ár að hans mati. Samkvæmt upplýsingum frá miðasölufólki blótanna er enn hægt að næla sér í miða en þó eru einhverjar takmarkanir á hvað megi hleypa í húsin. Á Sauðárkróki var búið að selja yfir 560 miða um hádegisbilið og því aðeins um 40 miðar eftir, ríflega 450 miðar eru seldir í Miðgarð og Höfðaborg eru rúmlega 300 manns búnir að skrá sig.

Fleiri fréttir