5000 ljósmyndir tilbúnar til birtingar á netinu
Á nýliðnu ári fékk Skjalasafn Skagfirðinga styrki frá Menningarráði Norðurlands vestra og Þjóðhátíðarsjóði til uppbyggingar ljómyndavefs á Netinu. Rökkvi Sigurlaugsson var ráðinn tímabundið til að skanna ljósmyndir úr safni Páls Jónssonar og voru þá skannaðar um 2000 ljósmyndafilmur.
Undir lok ársins voru um 5000 ljósmyndir tilbúnar til birtingar á netinu. Á nýju ári verður farið í verulegt átak til að skanna allt að 20.000 ljósmyndir. Þrjú héraðsskjalasöfn taka þátt í sameiginlegu verkefni þar sem ráðnir verða 6 starfsmenn, tveir á hverjum stað til að skanna, skrá og vinna myndir til birtingar á Netinu. Undir lok ársins samþykkti Alþingi að veita veglegan styrk til verkefnisins á fjárlögum 2011 og koma 4,5 milljónir í hlut Héraðsskjalasafns Skagfirðinga.
-Ljósmyndaverkefnið hefur verið undirbúið um árabil. Keyptur hefur verið nauðsynlegur hugbúnaður til að gera okkur kleift að birta myndir á Netinu og halda utan um stór ljósmyndasöfn. Vefurinn hefur enn ekki verið opnaður en það verður gert á næsta ári. Opnun slíks vefs verður ekki aðeins til þess að almenningur hafi betri aðgang að þeim gögnum sem varðveitt eru á safninu, heldur skapar hann gátt, þannig að almenningur geti sent inn upplýsingar um ljósmyndir og orðið til þess að fleiri íhugi að afhenda til okkar gömul myndaalbúm eða myndasöfn, segir Unnar Ingvarsson í ársskýrslu Skjalasafnsins.
Eitt af meginmarkmiðum með stofnun Héraðskjalasafns Skagfirðinga á sínum tíma, var að safna ljósmyndum af Skagfirðingum og atburðum í Skagafirði. Áætlað er að safnið varðveiti um 80-100.000 ljósmyndir. Líklega hefur safnið allt að tvöfaldast á síðustu tveimur árum. Munaði mestu um myndasafn Örlygs Hálfdanarsonar og Brunos Schweizer sem verður varðveitt á safninu. Talið er að þær myndir séu um 30.000. Safnið er vel skráð en til stendur að búa til sérstaka vefsíðu, þar sem hægt verður að nálgast einstakar myndir úr safninu.
