Níu hús í Varmahlíð áfram rýmd

Eins og Feykir greindi fyrst frá í gær þá féll stór aurskriða úr hlíðinni fyrir ofan Laugarveg í Varmahlíð á milli tveggja húsa og á þau, Laugaveg 15 og 17, um fjögurleytið í gær.
Ákveðið var á fundi almannavarnarnefndar í Skagafirði, sem fram fór í morgun, að þau hús sem voru rýmd í Varmahlíð í gær, hús númer 13-21 við Laugaveg og hús númer 5-11 við Norðurbrún, verði áfram rýmd þangað til að annað verður ákveðið.
Íbúar rýmdu húsana dvelja margir hverjir á Hótelinu í Varmahlíð að sögn hótelstjóra þar.
Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra segir í samtali við Mbl.is að nú standi yfir vinna sérfræðinga frá Veðurstofu Íslands og frá sveitarfélaginu við að meta yfirvofandi og áframhaldandi skriðuhættu þar sem aurskriða hefur þegar fallið í Varmahlíð. Stefán segir að til varúðar hafi rýmingu verið haldið óbreyttri og að staðan verði endurmetin á fundi almannavarna klukkan 17.30 síðdegis í dag.
„Verkefni dagsins er að reyna að átta okkur á því hvar þessi straumur liggur, reyna að grafa okkur niður á hann þveran og drena hann fram hjá byggðinni.“
Almannavarnarnefnd fundar síðar í dag og ný tilkynning verður send út kl. 18:00.
/SMH