Á barnið þitt rétt á gjaldfrjálsum tannlækningum?

Á vef sveitarfélagsins Skagafjarðar er minnt á nýleg ákvæði um tannlækningar barna. Tannlæknaþjónusta barna verður innleidd í áföngum til ársins 2018. Hún er nú þegar gjaldfrjáls, utan 2.500 króna árlegs komugjalds, fyrir eftirfarandi hópa:

  • 3 ára börn, þ.e. frá 3 ára afmælisdegi til 4 ára afmælisdaga
  • Börn á aldrinum 10 til og með 17 ára
  • Börn í bráðavanda sem búa við erfiðar félagslegar aðstæður. Tilvísun þarf að berast tannlækni frá heilsugæslu, barnaverndar- eða félagsmálayfirvöldum og skilyrði að Sjúkratryggingar Íslands hafi samþykkt umsókn frá tannlækni á grundvelli tilvísunar.

Forsenda er að foreldri skrái heimilistannlækni fyrir barn sitt. Skrá þarf barnið í Réttindagátt á www.sjukra.is og þar er að finna nánari upplýsingar. Tannlæknar geta einnig séð um skráninguna sé þess óskað og mælt er með að skrá barn hjá heimilistannlækni við eins árs aldur.

Fleiri fréttir