Áætla þrjár virkjanir neðan Blönduvirkjunar

Landsvirkjun áformar frekari nýtingu falls á núverandi veituleið Blönduvirkjunar, milli Blöndulóns og Gilsárlóns. Fyrirhuguð framkvæmd felur í sér að reisa allt að þrjár virkjanir á veituleið Blönduvirkjunar. Mat á umhverfisáhrifum virkjana á veituleið Blönduvirkjunar er unnið af Verkís fyrir Landsvirkjun.

Verkfræðistofan Verkís hefur unnið tillögu að matsáætlun á fyrirhuguðum framkvæmdum og framkvæmdasvæði lýst í skýrslu sem hægt er að nálgast á heimasíðu Verkís. Þar er fjallað um samræmi við gildandi skipulag og greint frá helstu áhrifaþáttum og á hvaða umhverfisþætti áhersla verður lögð á í frummatsskýrslu.

Fyrirliggjandi rannsóknum og gögnum er varða umhverfis- og áhrifaþætti framkvæmdar er lýst og greint er frá fyrirhuguðum rannsóknum. Að lokum er farið yfir hvernig staðið verður að samráði og kynningu vegna mats á umhverfisáhrifum virkjana á veituleið Blönduvirkjunar.

Almenningur er hvattur til að kynna sér drögin og og gera athugasemdir.  Athugasemdir sendist á netfangið: umhverfismal@verkis.is  eða í pósti til:

 

Verkís hf.

b.t. Hugrúnar Gunnarsdóttur

Ármúla 4

108 Reykjavík

Fleiri fréttir