Áberandi ölvaðir unglingar á réttardansleik

Samkvæmt heimasíðu Lögreglunnar á Sauðárkróki var nýliðin helgi tíðindalítil hvað slys varðar en mikill fjöldi fólks var samankominn í réttum og á dansleik í tilefni Laufskálaréttir.  Lögreglan var með aukinn viðbúnað í tilefni dagsins og meðal annars var fíkniefnaleitarhundur við störf í og við reiðhöllina þar sem dansleikurinn fór fram.

„Það er skemmst frá því að segja að frábær gæsla innandyra sem utan við reiðhöllina skilaði því að ekki kom til teljandi handalögmála og í þau fáu skipti sem uppúr sauð manna í milli var leikurinn skakkaður á 0,1 eins og sagt er stundum“, segir á heimasíðunni.

Það sem hins vegar setti dökkan blett á annars vel heppnaðan dansleik að mati Lögreglunnar var sú staðreynd að fjöldi ungmenna sem samkvæmt lögum hefur hvorki aldur til að neyta né kaupa áfengi var ofurölvi á svæðinu í og við reiðhöllina. Börn á aldrinum 15 – 18 ára voru áberandi ölvuð og útgangurinn á þeim eftir því, segir í færslunni og bent er á að ár hvert fari fram umræða um skemmtanahald fyrir þennan aldurshóp um hátíðir og um áramót og að nú sé tímabært að fara að leggja drög að þeim sem næst koma. „Það er orðið mikilvægt fyrir þá sem að þeim málum koma að fara yfir og marka stefnu til framtíðar í því hvernig skemmtanahald eigi að vera í boði fyrir áður nefndan aldurshóp því sú stefnuleysa að halda dansleiki þar sem bann við áfengisneyslu er auglýst en raunin er algjörlega í hina áttina er óásættanleg í því samfélagi sem við búum við í dag.“

Fleiri fréttir