Ábót á ábótina hjá Leikfélagi Sauðárkróks

Það er ekkert lát á vinsældum Sæluvikustykkis Leikfélags Sauðárkróks, Tifar tímans hjól. Á dögunum var bætt við tveimur sýningum og nú verður ábót á ábótina því enn hefur tveimur sýningum verið bætt við um hvítasunnuhelgina.

Nú eru því eftir þrjár sýningar í allt því Tifar tímans hjól verður sýnt í Bifröst hvítasunnudag 19. maí kl. 20:30 (uppselt), 13. sýning verður annan í hvítasunnu kl. 15:00 og 14. sýning sama dag kl. 20:30.

Uppselt hefur verið á allar sýningar og sumir ekki látið sér nægja að mæta einu sinni. Gera má ráð fyrir að sýningarnar um hvítasunnuhelgina séu allra síðustu sýningar og því vissara að tryggja sér miða fyrr en síðar... því þú tryggir þér þá ekki eftir á.

Fleiri fréttir