Ábyrgjast lán til uppgreiðslu á óhagstæðari lánum
Byggðarráð lagði til við sveitarstjórn Svf. Skagafjarðar á fundi sínum þann 20. september sl. að sveitarfélagið gangist í ábyrgð á óverðtryggðum lánssamningi í íslenskum krónum milli Arion banka hf. og Skagafjarðarveitna ehf. að lánsupphæð 250 millj. kr. til 24 ára.
„Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að sveitarfélagið gangist í einfalda ábyrgð á greiðslum samkvæmt lánssamningi þessum til lánveitanda,“ segir í fundargerð.
Þessum fjármunum er ætlað til uppgreiðslu á öðrum óhagstæðari lánum.