Aðalfundur Hrossaræktarsambands Skagfirðinga

Aðalfundur HSS verður haldinn þriðjudaginn 2. apríl kl. 20:00 á efri hæðinni í Menningarhúsinu Miðgarði. Á heimasíðu hestamannafélagsins Léttfeta kemur fram að gestur fundarins verður Einar E. Gíslason á Syðra-Skörðugili.

„Hann verður með sýningu á gömlum myndum sem hann hefur tekið í gegnum tíðina. Myndirnar tengjast hestum og mönnum í gegnum árin,“ segir á heimasíðunni.

 

Fleiri fréttir