Aðalfundur Leikfélags Sauðárkróks
Aðalfundur Leikfélags Sauðárkróks verður haldinn fimmtudaginn 7. júní kl. 20.00 í Leikborg. Dagskrá fundarins verður með hefðbundnu sniði auk þess sem komandi leikár verður kynnt.
- 1. Inntaka nýrra félaga
- 2. Skýrsla stjórnar
- 3. Afgreiðsla reikninga
- 4. Kosningar
- 5. Önnur mál
Félagar og þeir sem vilja ganga í félagið eru hvattir til að mæta á fundinn. Kaffi og gos í boði.
/Fréttatilkynning