Aðalfundur siglingaklúbbsins Drangeyjar í kvöld

Siglingaklúbburinn Drangey heldur aðalfund sinn í kvöld í aðstöðu klúbbsins við tilvonandi smábátahöfn á Sauðárkróki. Viðhöfð verða venjuleg aðalfundarstörf og meðal annars nýr formaður valinn. Jakob Frímann Þorsteinsson sem gegnt hefur stöðu formanns gefur ekki kost á sér til áframhaldandi setu svo sýnt er að annar fer með hlutverkið eftir fundinn.

Að sögn Ingvars Páls Ingvarssonar stjórnarmanns hefur starfsemi klúbbsins verið með hefðbundnu sniði allt frá stofnun hans en nú horfir til betri tíðar með væntanlegri bættri aðstöðu við nýju smábátahöfnina. –Við horfum björtum augum til framtíðarinnar, segir Ingvar Páll og hvetur alla sem áhuga hafa á málefnum klúbbsins að mæta í kvöld en fundurinn hefst klukkan 20:00.

Fleiri fréttir