Aðalfundur Skagfirðingafélagsins í Reykjavík

Aðalfundur Skagfirðingafélagsins í Reykjavík verður haldinn á morgun, miðvikudaginn 11. apríl, kl. 20. „Skagfirðingafélagið vinnur að félagsmálum Skagfirðinga á suðvesturhorninu, heldur viðburði þar sem Skagfirðingar koma saman, sýna sig og sjá aðra, borða góðan mat, syngja og skemmta sér. Ekkert árgjald,“ segir um félagsskapinn á facebook-síðu þeirra.

Aðalfundurinn fer fram í Gullöldinni Hverafoldi 5, í Grafarvogi. Allir Skagfirðingar eru velkomnir.

 

Fleiri fréttir