Aðalfundur Tindastóls í næstu viku

Aðalfundur Tindastóls verður haldinn 7. mars nk. í Húsi frítímans kl. 20.00. Auk almennra aðalfundastarfa verða styrkir veittir úr minningarsjóði Rúnars Inga Björnssonar. Á fundinum verður einnig skrifað undir styrktarsamning milli Tindastóls og Sparisjóðs Skagafjarðar.

Sparisjóður Skagafjarðar verður þar með aðalstyrktaraðili Tindastóls. Á fundinum verður boðið upp á veitingar í boði Sparisjóðsins. Aðalstjórn Tindastóls vonast til að sjá sem flesta á fundinum.

Fleiri fréttir