Aðsókn á bókasafnið á Króknum eykst milli ára
feykir.is
Skagafjörður, Mannlíf, Lokað efni
02.07.2026
kl. 13.51
Frá myndasögunámskeiði í gær. Á neðri myndinni má sjá svokallaðan bangsapoka; bók um Línu langsokk, Línu brúðu og bókasafnspoka. MYNDIR FRÁ SAFNINU
„Það er ánægjulegt að greina frá því að fjölgun gesta á Héraðsbókasafni Skagfirðinga, fyrri hluta ársins 2026 á Sauðárkróki, er tæp 10% miðað við fyrri hluta ársins í fyrra,“ segir í frétt á heimasíðu Skagafjarðar en gestum safnsins á Króknum hefur fjölgað alla mánuði ársins milli ára en mest þó í maí og júní. Árið 2025 komu 4.086 gestir á fyrri hluta ársins, en í ár eru gestirnir 4.477 sem er fjölgun um rúm 9,5%.
