Æfingar yngri flokka í jólafríinu

Á heimasíðu Tindastóls segir að nú þegar jólafríið nálgist sé rétt að koma á framfæri vinnureglum unglingaráðs varðandi æfingar yngri flokka í körfu í jólafríinu. Jólafrí þeirra yngri flokka sem ekki taka þátt í Íslandsmótinu fylgir nánast jólafríi Árskóla. Þeir fara í frí frá og með föstudeginum 21. desember og hefja aftur æfingar föstudaginn 4. janúar. Þetta eru Minni- og míkróboltaflokkar drengja og stúlkna.

Morgunæfingar verða út þessa viku, en fara svo í frí. Körfuboltaskólinn er kominn í jólafrí og verður ekki opnaður aftur fyrr en sunnudaginn 6. janúar. Æfingar í jólafríi þeirra flokka sem taka þátt í Íslandsmótinu verða svona;

  • 23.- 26. desember frí.
  • 27. des. Æfingar skv. æfingatöflu.
  • 28. des. Engar æfingar vegna jólaballs Lions.
  • 29. des. Æfingar skv. æfingatöflu.
  • 30. des. - 2. jan. frí.

Æfingar hefjast svo aftur eftir frí miðvikudaginn 2. janúar 2013.

Fleiri fréttir