Æpandi Eyeliner!

Það sem Fröken Fabjúlöss er alveg að elska við förðunartískuna þessa dagana er eyelinerinn. Svartur er náttúrulega alltaf klassískur en meira að segja svarta eyelinerinn má  "pimpa" upp og gera hann töff með því að hafa "vænginn" svokallaða (þennann sem maður gerir í ytri augnkrók og lætur koma aðeins út) tvöfaldann, hafa eyelinerinn þykkann, þunnann eða án "vængja"

En það sem Frökenin elskar þó umfram allt annað eru litaeyelinerarnir!! Allra kvikinda litalíki eru í gangi núna og glimmerið sem var á undanhaldi á tímabili er einnig að koma sterkt inn aftur!

Nú ætlar Frk. Fab að deila með ykkur leyndarmáli sem gerir það að verkum að þið þurfið ekki að krulla malbikið út í búð í hvert skipti sem ykkur langar í nýjann lit af eyeliner: Hvítur augnblýantur!!

Málið er nefnilega að flestar glamúrpíur eiga eitthvað safn- hversu stórt sem það annars er- af augnskuggum... Og ef hvítur augnblýantur er í snyrtibuddunni, þá á viðkomandi glamúrpía eins marga eyelinera og augnskuggasafnið er stórt! Trikkið er að byrja á að gera línu (í þykkari kantinum) með hvíta augnblýantinum. Næst á dagskrá er að velja litinn/litina á augnskugga sem brúka á sem eyeliner þann daginn og bera hann svo á með eyeliner eða þunnum augnabrúnapenlsi ofan á hvíta litinn og voila! Hvíti augnblýanturinn bæði festir augnskuggann og dregur fram litinn! Augnblýanturinn sem Fröken Fabjúlöss notar í þessum ákveðna tilgangi heitir Milk frá NYX- Algjör snilldarvara þar sem hann er ekki bara augnblýantur heldur er þetta einn sá besti primer undir augnskugga sem Frökenin hefur komist í, þar sem hann dregur svo vel fram litinn í augnskugganum!

Einnig eru mörg förðunarmerki sem eru með einhverskonar mixing "vökva" sem er hægt að nota í margt og meðal annars það að blanda eyeliner með því að skafa smá af augnskugga, eða taka augnskuggaduft og hræra saman við mixing "vökvann". Gellurnar hjá Make Up Store selja tildæmis svona græju og heitir það Mixing Liquid, og þessi útgáfa hjá MAC heitir Mixing Medium. Algjört must have í snyrtibudduna til að geta fullnýtt förðunardótið :)

Fleiri fréttir