Áfangasigur en stærstur hluti niðurskurðar óbættur
Bjarni Jónsson forseti sveitarstjórnar Skagafjarðar segir ástæðu til að fagna áfangasigri eftir að fréttir bárust af því að Guðbjartur Hannesson óskaði eftir því að stjórnendur Heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki hættu við áform sín um að loka sundlaug endurhæfingarhúss og draga verulega úr endurhæfingu eftir að fjármagn hafði verið tryggt frá hinu opinbera.
-Barátta heimamanna dugði þrátt fyrir allt til að gera heilbrigðisráðherra afturreka með hluta af boðuðum viðbótar niðurskurði, en loforð voru gefin um það við afgreiðslu fjárlaga, segir Bjarni og á þar við að sundlaug og endurhæfingu yrði ekki lokað.
Bjarni segir að stærstur hluti þess gríðarlega niðurskurðar sem stjórnvöld hafa gert heilbrigðisstofnunni, að taka á sig með meðfylgjandi þjónustu skerðingu og á fjórða tug starfa sem horfið hafa af stofnuninni, stendur ennþá óbættur. Baráttu heimamanna fyrir Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki og óréttlátum niðurskurði sé því hvergi nær lokið.