Aflatölur við Hofsós- og Sauðárkrókshafnir

Strandveiðibátar sem lönduðu við Sauðárkrókshöfn í júnímánuði voru níu talsins samkvæmt upplýsingum frá Daníeli B. Helgasyni hafnarverði og lönduðu þeir alls 65 tonnum af blönduðum afla, þar sem uppistaðan var þorskur. Það sem af er júlí hafa strandveiðibátar landað 17 tonnum við höfnina.

Á Hofsósi lönduðu sjö strandveiðibátar 27 tonnum í júní. Það sem af er júlímánuði hafa fimm bátar landað sjö tonnum.

Þá hefur verið nóg að gera á rækjuveiðum en þann 3. júlí sl. landaði Grímsnes BA-555 rúmum 25 tonnum af rækju og að sögn Daníels fór sá afli til Dögunar ehf. Sama dag landaði Þinganes SF-25 14 tonnum af rækju sem fór til FISK Seafood og verður unnin á Grundarfirði.

Jón Gunnlaugsson ÁR-444 landaði 14 tonnum af rækju þann 4. júlí og 5. júlí landaði Sæfari ÁR-170 átta tonnum af rækju. Í báðum tilvikum fór aflinn til FISK Seafood og verður unnin á Grundafirði.

Klakkur landaði 60 tonnum af lausfrystum makríl þann 5. júlí og fór hann til FISK Seafood. Þá landaði flutningaskipið Stella Orion 250 tonnum af bitumen þann 7. júlí, en bitumen er olíuhrat sem m.a. er notað í vegagerð.

Fleiri fréttir