Afmælishátíð í Miðgarði
feykir.is
Skagafjörður
25.09.2012
kl. 08.30
Nú eru 30 ár liðin frá því að leikskóli tók til starfa í Varmahlíð og í tilefni af því verður haldin afmælishátíð í Miðgarði á morgun, miðvikudaginn 26. september kl. 16:15 – 18:00.
Á dagskránni eru tónlistaratriði, sögð brot úr sögu leikskólans í máli og myndum og boðið upp á veitingar. Allir eru velkomnir.
