Afurðahæsta kýrin frá Stóru-Ökrum
Aðalfundur Félags kúabænda í Skagafirði var haldin á Mælifelli þann 13. febrúar sl. Við það tækifæri voru afhentir bikarar fyrir afurðahæstu kýrnar í Skagafiðri á liðnu ári. Það var kýr nr. 217 frá Stóru-Ökrum 1 sem var afurðahæst að þessu sinni. Byggt er á efnainnihaldi mjólkurinnar, þ.e. samanlögðu magni fitu og próteins.
Kýrin frá Stóru-Ökrum er mjög há í verðefnum, sérstaklega fitu, samanlagt mjólkaði hún 885 kg. Önnur afurðahæsta kýrin var Auðhumla frá Vöglum og í þriðja sæti var Hófý frá Keldudal. Þyngsta nautið var eins og oftast áður frá Hamri, vó 449 kg.
Gestur fundarins var framkvæmdarstjóri Landssambands kúabænda, Baldur Helgi Benjamínsson. Baldur fór yfir stöðuna í framleiðslu- og markaðsmálum nautgripabænda. Nokkur hækkun varð á afurðaverði til bænda á síðasta ári en þær hækkanir eru þó langt frá því að vega upp á móti miklum hækkunum á aðföngum, sérstaklega olíu og áburði.
Guðrún Lárusdóttir lét af embætti formanns eftir sex ára setu í stjórn, þar af tvö sem formaður. Auk þess gekk úr stjórn Jón Einar Kjartansson, einnig eftir sex ára setu. Nýr formaður var kjörinn Valdimar Sigmarsson sem tekur nú sæti í stjórn á ný eftir tveggja ára hlé. Auk þess sitja í stjórninni Ingibjörg Hafstað, Ómar Jensson, Róbert Jónsson og Kristinn Sævarsson sem kom nýr í stjórn.
Fyrsta verk nýkjörinnar stjórnar var að skipuleggja fræðslu- og skemmtiferð kúabænda um Suðurland dagana 14.- 16. apríl næstkomandi.
/GL