Air Arctic tekur flugið á Krókinn

Í hádeginu í dag voru undirritaðir í höfuðstöfðum Isavia samningar milli flugfélagsins Air Arctic og Isavia um að hefja að nýju áætlunarflug til Sauðárkróks en það hefur legið niðri frá ársbyrjun 2012. Áætlað er að fyrsta flug Air Arctic á Krókinn verði nk. þriðjudag.

Sjö ferðir eru áætlaðar í viku hverri en tvo dagana verður flogið tvisvar á dag snemma á morgnana frá Reykjavík eða kl. 7:45 og til baka kl. 17:00. Mikil vinna og yfirlega sveitarstjórnarmanna í Skagafirði liggur að baki ákvörðunar innanríkisráðherra á þessu verkefni sem nú er loks í höfn en yfir marga þröskulda var að fara á þeirri leið.

Að sögn Stefáns Vagns Stefánssonar formanns byggðarráðs Skagafjarðar er það bæði jákvætt og gleðilegt fyrir Skagafjörð og Norðurland vestra að þetta sé í höfn.

-Það má segja að þetta sé einn þáttur í því að auka búsetu á svæðinu og eflir samkeppnishæfni Skagafjarðar sem og Norðurlands vestra í heild. Það er afar ánægjulegt að sjá þetta gerast nú í ljósi umræðunnar um fækkun starfa í Skagafirði og að einhver þeirra sé að skila sér til baka, segir Stefán.

Fleiri fréttir