Akrahreppur styrkir Tyrfingsstaðaverkefnið
Hreppsnefnd Akrahrepps tilkynnti á dögunum Byggðasafni Skagfirðinga um styrk til Tyrfingsstaðaverkefnisins til næstu fjögurra ára, samtals um 1,6 millj. kr. „Stuðningur Akrahrepps er ómetanlegur,“ segir á heimasíðu Byggðasafnsins.
Samkvæmt heimasíðu Byggðasafnsins þá sótti safnið um styrk til Akrahrepps til að halda áfram viðgerðum og endurnýjun bygginga á Tyrfingsstöðum á Kjálka en unnið hefur verið að viðgerðum á húsum á Tyrfingsstöðum og kennslu byggingahandverks frá 2007.
„Verkefnið hefur gengið vel en nú er komið að kostnaðarsömum áföngum sem verður að vinna í nokkrum stórum aðgerðum, sem henta ekki allar fyrir námskeið Fornverkaskólans en hann hefur nýtt hús jarðarinnar til að kennslu viðgerða og gamalla handbragða sem þeim tengjast,“ segir á heimasíðunni.
Byggðasafnið ber ábyrgð á Tyrfingsstaðaverkefninu og sér um að viðgerðir og endurnýjun húsa á Tyrfingsstöðum fari fram samkvæmt markmiðum og áherslum minjaverndar og varðveislu. Jafnframt skráir safnið og myndar allar framkvæmdir og safnar heimildum um verkefnið um leið og það er unnið. Safnið kostar einnig allt efni sem unnið er með á Tyrfingsstöðum og vinnu sérfræðinga við skráningar og viðgerðir sem fram fara utan námskeiða Fornverkaskólans.
Akrahreppur ætlar að styrkja verkefnið um eina milljón króna á árinu 2013, og tvö hundruð þúsund á hverju ári 2014, 2015 og 2016. Samtals gerir þetta um 1,6 millj. kr.