Al-Anon Leiðin komin út
Al-Anon fjölskyldudeildirnar á Íslandi vekja athygli á því að út er komin á íslensku bókin How Al-Anon Works. Hún hefur fengið heitið Al-Anon Leiðin á íslensku. Al-Anon Leiðin er ráðstefnusamþykkt lesefni.
Í Al-Anon leiðinni er fjallað, á afar greinargóðan hátt, um hvernig virk þátttaka í Al-Anon samtökunum hjálpar aðstandendum alkóhólista til að átta sig á þeim áhrifum, sem þeir hafa orðið fyrir vegna drykkju annarra. Ennfremur eru í bókinni fjölmargar reynslusögur, sem veita Al-Anon félögum innsýn inn í mismunandi bataleiðir.
Al-Anon Leiðin er til sölu á flestum fundum hinna fjölmörgu Al-Anon deilda um allt land og ennfremur á skrifstofu samtakanna að Grandargarði 14, 101 Reykjavík. Þar er opið á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl 10:00 til 13:00. Al-Anon Leiðin kostar 5800 krónur. Góðar upplýsingar um Al-Anon fjölskyldudeildirnar á Íslandi eru á heimasíðu samtakanna www.al-anon.is og síminn á skrifstofunni er 551-9282.
/Fréttatilkynning