Álagning fasteignagjalda 2013 lokið
Álagningu fasteignagjalda í Sveitarfélaginu Skagafirði árið 2013 er lokið. Samkvæmt heimasíðu sveitarfélagsins geta allir greiðendur fasteignagjalda til sveitarfélagsins, einstaklingar og lögaðilar, nálgast rafræna álagningarseðla í Íbúagátt á heimasíðu sveitarfélagsins. Einnig er hægt að nálgast álagningarseðlana á vefsíðu island.isundir flipanum „Mínar síður".
Í ár eru álagningarseðlar sendir í pappírsformi til þeirra greiðenda sem eru eldri en 70 ára og þeirra sem þess óska. Álagningarseðlarnir berast í pósti næstu daga. Greiðsluseðlar vegna fasteignagjaldanna birtast í heimabönkum nú í vikunni og í kjölfarið berast þeir líka þeim sem óskað hafa eftir að fá þá heimsenda.
Við álagningu nú í janúar er reiknaður afsláttur á fasteignaskatt vegna elli- og örorkulífeyrisþega til bráðabirgða og miðað er við tekjur ársins 2011. Þegar álagning 2013 vegna tekna ársins 2012 liggur fyrir næsta haust, verður afslátturinn endanlega reiknaður og getur það leitt til inneignar eða skuldar eftir því sem við á. Allar breytingar verða þá kynntar bréflega hverjum og einum. Ekki er þörf á að sækja sérstaklega um þennan afslátt.
Nánari upplýsingar um álagninguna og innheimtu eru veittar á heimasíðu sveitarfélagsins, í síma 455 6000 eða í netfangi innheimta@skagafjordur.is.
