Álagning fasteignagjalda í Skagafirði

Á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar er sagt að Fasteignagjaldakröfur Sveitarfélagsins Skagafjarðar sé  hægt að greiða í heimabönkum.  Þar er fasteignaeigendum jafnframt bent á að notfæra sér beingreiðslur hjá öllum bankastofnunum eða boðgreiðslur af greiðslukortum.

  • Í Íbúagátt á heimasíðu sveitarfélagsins geta fasteignaeigendur:
  • Óskað eftir að fá sendan álagningarseðil.
  • Óskað eftir að greiða fasteignagjöldin með boðgreiðslu.
  • Óskað eftir að greiða öll fasteignagjöldin á einum gjalddaga.
  • Tilkynnt um breytingar er varða greiðslur og greiðendur á fasteignagjöldum.

Álagning - breytingar - innheimta

Þess er óskað að ábendingar um breytingar og leiðréttingar á álagningu eða innheimtu berist til sveitarfélagsins eftir einhverri eftirtalinna leiða; í gegnum Íbúagáttina, símleiðis í síma 455-6000 eða með tölvupósti á netfangið  innheimta@skagafjordur.is

Álagningarseðill

Álagningarseðlar fasteignagjalda verða sendir bréfleiðis til allra sem eru 70 ára og eldri. Þessir aðilar geta tilkynnt um ósk sína að fá rafræna útgáfu af álagningarseðli í Íbúagátt sveitarfélagsins eða með símtali við afgreiðslu sveitarfélagsins.  Vinsamlegast  tilkynnið það sem fyrst.  Allir gjaldendur, lögaðilar og einstaklingar, geta nálgast rafræna útgáfu álagningarseðilsins í Íbúagáttinni og á vefsíðu island.is undir "Mínar síður".

Gjalddagar

Gjalddagar fasteignagjaldanna verða átta frá 1. febrúar til og með 1. september 2013. Ef álagning fasteignagjalda á fasteign nær ekki 23.000 kr. á gjaldanda, verður öll upphæðin innheimt á fyrsta gjalddaga, 1. febrúar 2013. Hægt er að fá að greiða öll gjöldin á einum gjalddaga 1. maí 2013 eða fyrr, séu þau jöfn eða umfram 23.000 kr. Sækja verður um það fyrir 23. janúar 2013.

Greiðslumátar eru eftirtaldir.  Athugið að greiðslumáti fyrra árs heldur sér þar til tilkynnt er um annað.

Beingreiðslur

Innheimtur greiddar með beingreiðslum af bankareikningum greiðenda.  Vinsamlegast hafið samband við þjónustufulltrúa í viðkomandi banka til að virkja þennan kost.  Engir greiðsluseðlar verða sendir til greiðenda. Ef þessi kostur hefur verið notaður í áður, þá er þjónustan virk þangað til að henni er breytt að ósk gjaldanda.

Boðgreiðslur

Tilkynna þarf til sveitarfélagsins ef óskað er eftir að greiða fasteignagjöld með kreditkorti. Þetta á einungis við þá sem eru í fyrsta sinn að óska eftir þessum greiðslumáta fasteignagjalda. Engir greiðsluseðlar verða sendir til greiðanda.  Sækja þarf um breytingu á greiðslumáta fyrir 23. janúar 2013.

Greiðsluseðlar

Innheimtur greiddar með heimsendum greiðsluseðlum.  Hvatt er til þess að aðrir greiðslukostir séu notaðir.

 Elli- og örorkulífeyrisþegar

Lækkun fasteignaskatts á íbúðum elli- og örorkulífeyrisþega eru reiknuð við álagningu til bráðabirgða og er stuðst við tekjur samkvæmt skattframtölum 2012 vegna tekna ársins 2011.  Hámarks afsláttur í upphafsálagningu er 27.500 kr. Endanlegur útreikningur fer fram þegar álagningu 2013 vegna tekna ársins 2012 er lokið. Getur það leitt til inneignar eða skuldar viðkomandi eftir því sem við á. Skilyrði til lækkunar fasteignaskatts er að viðkomandi elli- eða örorkulífeyrisþegi eigi lögheimili í sveitarfélaginu, búi í eigin íbúð og sé 67 ára á árinu eða eldri eða hafi verið úrskurðaður 75% öryrki. Afsláttur nær eingöngu til þeirrar íbúðar sem viðkomandi býr í. Afslátturinn er tekjutengdur og er að hámarki kr. 55.000.  Afslátturinn er hlutfallslegur að teknu tilliti til allra skattskyldra tekna skv. skattframtali 2013.

Tekjumörkin eru sem hér segir:

Fyrir einstaklinga:

a) með tekjur allt að kr. 2.491.000 fullur afsláttur sbr. hér að ofan.

b) með tekjur yfir kr. 3.358.000 enginn afsláttur.

 

Fyrir hjón og samskattað sambýlisfólk:

a) með tekjur allt að kr. 3.358.000 fullur afsláttur sbr. hér að ofan.

b) með tekjur yfir kr. 4.549.000 enginn afsláttur.

Ef tekjur eru á framangreindu bili er veittur hlutfallslegur afsláttur.

Ekki er þörf á að sækja um þennan afslátt.

 

Fleiri fréttir