Alexandra í Súkkulaðilandi

Alexandra Chernyshova söngkona og óperufrumkvöðull í Skagafirði segir á Fésbókarsíðu sinni vera spennt fyrir nýju lagi sem stúlknakórinn hennar Draumaraddir mun syngja á nýjum geisladiski. Lagið er stórskemmtilegt og gerði Hilmir Jóhannesson á Sauðárkróki texta við hæfi. Nú hefur Alexandra sett sýnishorn á YouTube og gaman verður að sjá hvaða breytingar kunna að verða á laginu þegar yfir lýkur.

Textinn við lagið er í heild sinni fyrir neðan myndbandið.

http://www.youtube.com/watch?feature=player_embedded&v=SdZZzZHzKns
Súkkulaðiland

Okkur dreymir allar um ævintýrastað,
allir vita hvað gott er að borða súkkulað,
já allir vita að súkkulaði er svo undur gott.
Súkkulaði, súkkulaði í svaka stórum pott,

Það er súkkulaðiland - það er súkkulaðiland,
þetta sem við þráum.
Súkkúsúkkúlaðiland - súkkúlaðilaðiland,
þetta sem við fáum.
Því að súkkúlaðiland - verður okkar land
og það er fyrir alla.
Að hika nær engri átt,
syngja með og syngja hátt.
Í súkkulaðilandi.

í súkkulaðilandi það syngja allir þar,
í súkkulaðilandinu þar gleymast sorgirnar.
Súkkulaði á morgnanna go svo um hádegið,
go svo bara við leiða súkkulaði fáið þið.

Það er súkkulaðiland - það er súkkulaðiland,
þetta sem við þráum.
Súkkúsúkkúlaðiland - súkkúlaðilaðiland,
þetta sem við fáum.
Því að súkkúlaðiland - verður okkar land
og það er fyrir alla.
Að hika nær engri átt,
syngja með og syngja hátt.
Í súkkulaðilandi.

Ekki vera að tuða um tannpínu og sorg,
við tökum ekki mark á þvi í súkkulaðiborg.
Því okkar súkkulaði það ekki skemmir neitt,
alltaf sætt og ljúft og gott og getur engan meitt.

Það er súkkulaðiland - það er súkkulaðiland,
þetta sem við þráum.
Súkkúsúkkúlaðiland - súkkúlaðilaðiland,
þetta sem við fáum.
Því að súkkúlaðiland - verður okkar land
og það er fyrir alla.
Að hika nær engri átt,
syngja með og syngja hátt.
Í súkkulaðilandi.

Fleiri fréttir