Álftir á Sauðánni
Þau voru aðeins að máta nýju tjörnina á Sauðárkróki frú Álft og hr. Svanur þegar Jakob Jóhannsson átti leið þar framhjá í gær. -Þær voru hálfstressaðar yfir nærveru minni og flugu burtu skömmu síðar, segir Jakob. Tjörnin sem um ræðir var mótuð í fyrrasumar í árfarvegi Sauðárinnar neðan sjúkrahússins en hún er lítil og ólíklegt að fuglar taki sér fasta búsetu við hana.
Líklega er þetta í fyrsta skiptið sem álftir sjást á Sauðánni en hún hefur fram að breytingunum verið grunn og ekki fýsileg fyrir svo stóra fugla. Þarna gætu verið sömu fuglar á ferð og sáust á Tjarnartjörn um helgina en hún er að mestu undir ís og erfitt fyrir parið að athafna sig á henni.