Algjörlega frábær þessi Feykir
Frú Frábær hefur séð hið nýja útlit á Feyki.is og er alveg himinlifandi með það. Hefur hún aldrei áður séð jafn skemmtilega síðu á Netinu þó hún hafi víða ratað. Óskar hún öllum Norðlendingum gleðilegs nýs árs og til hamingju með fréttamiðilinn sinn. –Verið svo dugleg, elskurnar mínar að senda inn fréttaskot og myndir af öllu mögulegu, því það er svo frábært.