Allir á völlinn!
Það er stórleikur á Sauðárkróksvelli í dag en þá fær Tindastóll lið Leiknis Reykjavík í heimsókn. Leikurinn er mikilvægur í baráttunni fyrir áframhaldandi sæti beggja liða í 1. deildinni og eru stuðningsmenn Tindastóls hvattir til að fjölmenna á völlinn, Kaupfélag Skagfirðinga splæsir en nú er bara að muna eftir að klippa frímiðann úr Sjónhorninu en hann gildir fyrir alla fjölskylduna.
Leikurinn hefst kl. 14:00 og það er kannski rétt að áhorfendur hafi í huga að það má reikna með einhverjum rigningarslettum í dag en það er sæmilega hlýtt og svolítill suðvestan vindur.
Tindastóll er sem stendur í níunda sæti deildarinnar með 21 stig en Leiknir í ellefta sæti með 16 stig. Sigur í dag nánast gulltryggir sæti Stólanna í deildinni en baráttan á botninum yrði ansi æsileg ef Leiknir fer með sigur af hólmi.
Þá er rétt að minna á að það er ekki einungis á Sauðárkróksvelli sem skagfirskir fótboltamenn reima á sig takkaskóna því lið Drangeyjar spilar í dag kl. 16:00 aukaleik um sæti í 3. deild að ári, en leikið verður við Augnablik á Skallagrímsvelli í Borgarnesi.