Allir fótboltakrakkar fá bol
Allir þeir krakkar sem stundað hafa fótbolta með Tindastóli í vetur munu fá afhenta æfingaboli merkta félaginu á æfingatíma á morgun og laugardag. Foreldrar eru hvattir til að fylgjast með því að krakkarnir mæti svo allir verði glaðir.
Mikil áhugi er á fótbolta í yngri flokkunum og mikill fjöldi verið að æfa í vetur að sögn Ómars Braga Stefánssonar formanns knattspyrnudeildarinnar. Það eina sem háir starfseminni eru lélegar aðstæður til æfinga.